Verkfærakista starfsfólks og foreldra

Ungur karl í litríkum fötum með fána hinsegin fólks.

Jafnvel þótt flestir skilji mikilvægi kynfræðslu geta mörg upplifað óöryggi þegar kemur að því að kenna, hvort sem það stafar af óvissu um eigin þekkingu, hræðslu við erfiðar spurningar eða óvissu um hvað hentar hverju aldursstigi.

Góðu fréttirnar eru að við þurfum ekki að hafa öll svörin áður en við byrjum. Hér má finna gagnleg ráð og fræðsluefni til undirbúnings.

Hvernig kenni ég kynfræðslu?

Hvar finn ég kynfræðsluefni til að kenna?

Á heimasíðu Jafnréttisskólans má finna verkfærakistur með ýmsum kennsluleiðbeiningum, verkefnum, bókum, myndböndum og frekari vefsíðum sem hægt er að nýta í kennslu. Efnið er aldurskipt og miðar við þroska og þekkingu barna á hverju stigi. 

Í hverju felst alhliða kynfræðsla?

Alhliða kynfræðsla snýst um að huga að sem flestum þáttum kynheilbrigðis; líkamlegum, félagslegum og tilfinningalegum þáttum. Mikilvægt er að kynfræðslan sé aðlöguð með aldur og þroska barna og ungmenna í huga. Alhliða kynfræðsla nær yfir kynfræðslu, hinsegin fræðslu, kynjafræðslu sem og jafnréttismenntun. 

- Helstu áherslur kynfræðslu í grunnskólum

Jafnréttisskólinn byggir á þemum UNESCO um ahliða kynfræðslu sem má kynna sér hér að neðan.
Þemu UNESCO um ahliða kynfræðslu og nokkur dæmi.
 

- Þemu UNESCO um ahliða kynfræðslu
Þess bera að geta að listinn er ekki tæmandi og ekki allt í hverjum flokk á við allan aldur. Kynfræðsla miðar ávallt að aldri og þroska barna og ungmenna að hverju sinni.

Af hverju er alhliða kynfræðsla mikilvæg?

Samkvæmt fræðslulögum eiga öll börn að fá kynfræðslu á öllum skólastigum. Með því að veita alhliða kynfræðslu erum við að:

  • Þjálfa börn og unglinga í að þekkja og virða sín eigin mörk og mörk annarra, og hjálpa þeim að skilja að mörk fólks eru mismunandi
  • Auka þekkingu þeirra á líkamanum, tilfinningum, kynvitund, kynhneigð, réttindum, heilbrigðum samskiptum og kynheilbrigði
  • Efla sjálfsmynd þeirra og þjálfa þau í gagnrýnni hugsun svo þau geti tekið ákvarðanir sem eru þeim og öðrum til góðs
  • Gera þau meðvituð um kynheilsu sína og styrkja þau í að taka eigin ákvarðanir með virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum að leiðarljósi

Efni Jafnréttisskólans byggir á þema UNESCO um alhliða kynfræðslu. 

Hvað er gott að hafa í huga fyrir kynfræðslukennslu?

Áður en þú byrjar er gott að undirbúa bæði umhverfið og þig sjálfa/n/t. Settu skýrar reglur með hópnum um hlustun, virðingu og þagnarskyldu. Ef nemendur taka þátt í að móta þær eykur það eignarhald þeirra á þeim. Hafðu í huga fjölbreytileikann innan hópsins og undirbúðu sérstaklega þá einstaklinga sem þú telur kunna að eiga erfitt með umræðuefnið, þar sem sumir þurfa að vita fyrirfram hvað er á dagskrá.

Orðaval skiptir máli. Reyndu að tala eins kynhlutlægt og hægt er, notaðu rétt heiti á líkamshlutum og forðastu að fullyrða um alla eða gera ráð fyrir reynslu nemenda fyrirfram. Tónninn þinn, kurteis og hlýr, setur stemminguna fyrir allan hópinn.

Farðu líka í gegnum eigin viðhorf og fordóma áður en þú byrjar. Ef þú treystir þér ekki í ákveðna umræðu skaltu ekki þvinga þig til þess. Betra er að fá annan fagaðila eða undirbúa sig vel. Mundu að þú ert í fræðsluhlutverki, ekki sem ráðgjafi eða jafningi, og deildu ekki eigin kynlífsreynslu með nemendum.

Hvernig er gott að bregðast við óvæntum spurningum?

Óvæntar spurningar eru hluti af þessum tímum og oft eru þær merki um að nemandinn treysti þér nógu vel til að spyrja. Nokkur ráð:

  • Þú þarft ekki að vita allt. „Það er mjög góð spurning, ég ætla að kanna það og svara því almennilega seinna" er fullgilt svar
  • Ef spurning er utan viðfangsefnisins eða við hæfi eldri hóps skaltu taka hana alvarlega en skýra hvenær og hvar hún á betur heima: „Þetta er eitthvað sem við tökum betur fyrir þegar þið eruð eldri"
  • Ef spurning lætur í ljós að nemandi kann að vera í erfiðri stöðu skaltu ekki reyna að leysa það í hópnum. Taktu nemandann til hliðar eftir tímann og fylgdu verklagsreglum skólans

Váviðvaranir - Trigger warnings

Alhliða kynfræðsla nær yfir víðan völl þess sem viðkemur líkömum, mörkum, heilbrigðum samskiptum, hinseginleika, jafnrétti kynja, inngildingu, fjölmenningu, rasisma og fötlunarfordóma, svo eitthvað sé nefnt. Gott er að hafa í huga að slík umræðuefni getur haft vakið upp minningar eða reynslu sem er erfið fyrir ungmenni, sérstaklega þau sem tilheyra minnihlutahópum. Þá er gott að undirbúa nemendurna með því að láta þau vita hvað verði rætt þann daginn og að þeim er alltaf velkomið að stíga út fyrir kennslustofuna til að taka pásu ef þau vilja og að þau geti einnig leitað til skólasálfræðings eða námsráðgjafa ef það er eitthvað sem liggur þeim á hjarta. 

Bæklingar

Erfið spjöll er handbók fyrir starfsfólk skóla- og frístundasvið um viðbrögð þegar barn eða ungmenni greinir frá ofbeldi. Ýmis ráð sem gagnast til undirbúnings fyrir kynfræðslu eða samtals um slík málefni, bæði fyrir starfsfólk og foreldra.

Hvað nú? er bæklingur til stuðnings við foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreitni. 

Eitt skref í einu er bæklingur til stuðnings aðstandenda barna og ungmenna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreitni. 

Að ná áttum er bæklingur til stuðnings aðstandenda barns þegar koma upp áhyggjur af velferð þess vegna alvarlegs atviks. 

Úrræði

Ofbeldi gegn börnum er upplýsingasíða lögreglunnar. 

Kynbundið ofbeldi og skólakerfið er leiðarvísir fyrir stjórnendur og starfsfólk í skólakerfinu varðandi forvarnir, viðbrögð og úrvinnslu mála er varða kynbundið ofbeldi. 

Hvert get ég leitað er veggspjald með ýmis úrræðum sem standa til boða sem hægt er að prenta út og hengja upp. 

Hvernig nálgast ég umræðuna við barnið eru ráð fyrir áhyggjufulla foreldra.

Upplýsingabæklingur frá Stígamótum um kynferðisofbeldi og þjónustu Stígamóta á fjölmörgum tungumálum. 

Frá tabú í traust

Frá tabú í traust er netfræðsla á vegum Jafnréttisskólans um kynfræðslu yngri barna. Netfræðslan skiptist í fimm hluta: Kynfræðslu yngri barna, kynferðisleg hegðun barna, ráð fyrir árangursríka fræðslu, fræðsluefni og verkfæri og kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. 

renna