Miðstig

Teikning af fjórum unglingum.

Verkfærakista Jafnréttisskólans fyrir miðstig inniheldur ýmis konar fræðslu, verkefni, kveikjur, myndbönd, bækur og fleira fyrir starfsfólk skóla og aðstandendur barna til að nýta sér í kennslu eða heima fyrir.

Verkfærakistur Jafnréttskólans miða að því að framfylgja menntastefnu Reykjavíkurborgar og byggja á þema UNESCO um alhliða kynfræðslu. 

Verkfærakista miðstigs

Verkefni og kennsluleiðbeiningar 

Öryggi og ofbeldi

Líkaminn

Jafnrétti

Hinseginleiki

  • Kynjakakan er útskýringarmynd til að átta sig á kynvitund, kyntjáningu, kyneinkennum, ásamt rómantískri og kynferðislegri aðlögun. 

  • Kynhyrningurinn er útskýringarmynd til að átta sig á kynvitund, kyntjáningu, kyneinkennum, rómantískri og tilfinningalegri aðlögun. 

Kynhlutverk 

Klám

  • Að tala við börn um klám eru ráðleggingar til starfsfólk um hvernig er hægt er að nálgast umræðu um klám við börn á miðstigi.

Sjálfsmynd

Samskipti

Bækur og kennsluefni

Jafnrétti

Kynfræðsla

  • Ég og sjálfsmyndin er bók sem fjallar um ýmsa þætti samfélagsins, til dæmis kynþroska og klám. 

  • Kyn, kynlíf og allt hitt er kynfræðslubók sem fjallar um ýmsar hliðar líkama, fjölskyldu og fleira.

  • Náttúrulega 3 er náttúrufræðibók þar sem fjallað er meðal annars um kynþroska og erfðafræði í kafla 2. 

  • Tíðahringurinn er litabók um innri kynfæri fólks með píku og tíðahringinn. 

  • Kynlíf - stelpur er tímarit þar sem ýmsum spurningum um kynþroska er svarað. 

  • Kynlíf - strákar er tímarit þar sem ýmsum spurningum um kynþroska er svarað. 

Hinseginleiki

Myndbönd og þættir 

Á íslensku

  • Alls kyns um kynþroskann er fræðslumynd fyrir miðstig um helstu breytingar á kynþroskaskeiði.

  • Forfallakennarinn er fræðslumynd um kynþroska, kynlíf og kynheilbrigði. 

  • Myndin af mér er fræðslumynd um kynlíf, ábyrgð og ofbeldi á netinu. 

  • Betra að segja en að þegja er myndband um netöryggi frá UNICEF. 

  • Big Mouth eru teiknimyndaþættir um kynfræðslu fyrir miðstig og unglingastig á Netflix. Þættirnir geta þótt ögrandi en hafa notið mikilla vinsælda hjá ungmennum. Hægt er að horfa velja þátt fyrirfram og hafa tilbúnar umræðuspurningar í kjölfarið.  

  • Börn stíga fram – UNICEF er myndband þar sem börn stíga fram og fjalla um réttindi barna.  

  • Heimsmarkmið 5 er þáttur gefinn út af RÚV um heimsmarkið 5 sem fjallar um jafnrétti kynjanna.  

  • Myndin af mér er leikin mynd í fjórum þáttum sem hentar vel til fræðslu fyrir nemendur í 7.–10. bekk. Myndin fjallar um stafrænt kynferðisofbeldi og byggir á sannri sögu tveggja unglinga.  

  • Staðalmyndir og kynjuð störf er myndband sem sýnir hversu staðlaðar hugmyndir barna geta verið um atvinnulífið. Góð kveikja að umræðum og frekari verkefnavinnu.  

  • Vegurinn heim er íslensk heimildamynd með viðtölum við fimm börn innflytjenda á Íslandi.    

Á ensku 

  • Close the gender pay gap er myndband um launamun kynjanna. 

  • Online grooming er myndband um hættur á netinu. 

  • If Cinderella were a guy er myndband/kveikja sem sýnir söguna um öskubusku ef hún væri karl. Hægt að nota sem kveikju að umræðu um hlutverk kynjanna og staðalímyndir. 

  • Sexism er stutt myndband um kynjaójafnrétti og áhrif þess á fólk.  

  • The Ugly truth of Children´s books er myndband sem sýnir stöðu kynjanna í barnabókum og hvað kvenkyns persónur gegna oft einsleitum hlutverkum á meðan karlkynspersónur eru fjölbreyttari og stýra oft gangi sögunnar.  

  • The Smurfette principle er stutt myndband á ensku um svokallaða strumpaeinkennið, þar sem aðal söguhetjurnar eru karlkyns en konur einungis í aukahlutverki.  

  • Dove Onslaught er myndband um útlitsdýrkun og líkamsímynd. 

Á norrænu máli

  • Kynþroskinn eru norskir þættir um kynþroskann og allt sem honum fylgir. Þættirnir eru stuttir og mikilvægt er að velja þætti sem henta hverju sinni. Þeir geta verið góðar kveikjur að frekari umræðum eða verkefnavinnu. 

Leikir

Hinseginleiki

  • Hvort ertu? er leikur til að hefja umræðu um hinseginleikann eða annan fjölbreytileika. 

Jafnrétti

Vefsíður

  • Kynþroski stúlkna er vefur hjúkrunarfræðinga um kynþroska. 

  • Youmo er sænsk fræðslusíða um kynþroska og samskipti ungmenna.

  • Kynheilbrigði er vefur Heilsuveru um ýmist sem tengist kynþroska, kynhneigð og kynheilbrigði.

  • Klámspjall er síða Stígamóta með ýmis fræðslu og upplýsingum um hvernig hægt er að nálgast umræður um klám. 

  • Vefur 112.is er vefur lögreglunnar þar sem má finna ýmist fræðsluefni um ofbeldi.

  • Hvað er endómetríósa? er upplýsingasíða Endó-samtakana um endómetríósu.

  • Hvað er intersex? er heimasíða Intersex Ísland þar sem finna má ýmis fróðleik.

  • Netvís er miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi (áður þekkt sem SAFT). Þar má finna efni fyrir börn, starfsfólk og aðstandendur barna.

  • Stopp ofbeldi er vefur sem inniheldur ýmist aldursskipt fræðsluefni um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi. 

  • Sterkari út í lífið er vefur um sjálfsmynd barna og ungmenna.

  • Sjúk ást er er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna og einkenni heilbrigða sambanda. 

  • Keep it real online er síða um netöryggi og online grooming.