Unglingastig
Verkfærakista Jafnréttisskólans fyrir unglingastig inniheldur ýmis konar fræðslu, verkefni, kveikjur, myndbönd, bækur og fleira fyrir starfsfólk skóla og aðstandendur barna til að nýta sér í kennslu eða heima fyrir.
Verkfærakistur Jafnréttisskólans miða að því að framfylgja menntastefnu Reykjavíkurborgar og byggja á þema UNESCO um alhliða kynfræðslu.
Verkfærakista unglingastigs
Verkefni og kennsluleiðbeiningar
Öryggi og ofbeldi
- Fræðslupakki Viku6 2026 - Unglingastig inniheldur ýmiss konar verkefni tengd öryggi og ofbeldi.
- Fræðslupakki Viku 6 2026 - Félagsmiðstöðvar inniheldur ýmiss konar verkefni tengd öryggi og ofbeldi.
- Píramídi kynferðislegs ofbeldis eru kennsluleiðbeiningar til að átta sig á hvernig viðhorf, orðræða og smávægileg hegðun skapa jarðveg fyrir alvarlegra ofbeldi.
- Kynferðisofbeldi gegn körlum sett upp sem grín er verkefni um áhrif dægurmenningar á viðhorf samfélagsins til kynferðisofbeldis.
- Að meta sambandið mitt er verkefni til að átta sig á stuðningsnetinu sínu.
- Heimilisofbeldi eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um heimilisofbeldi og jafnrétti kynjanna.
Kynfræðsla
- Fræðslupakki Viku 6 2025 inniheldur ýmis konar verkefni tengd líkamanum og kynfærum.
- Er ég tilbúið/n/nn að byrja að stunda kynlíf? er gátlisti fyrir ungmenni.
- Nafnlausar spurningar eru kennsluleiðbeiningar um líkamann og kynfæri í tilefni Viku6 2025.
- Rökræður - Sammála/ósammála eru kennsluleiðbeiningar um kynhlutverk, jafnrétti, mörk og kynlíf.
- Notkun smokks og töfrateppis eru leiðbeiningar um notkun getnaðarvarna.
- Kynfæri er litablað um mismunandi gerðir kynfæra.
- Kossar er stutt kynningarblað um af hverju fólk kyssist.
Jafnrétti og kynjafræði
- Samtvinnun eru kennsluleiðbeiningar í tilefni dags mannréttinda barna 2024.
- Að greina lagatexta er verkefni til að vekja umhugsun um skilaboð í lögum.
- Konur - ekki hlutir er verkefni um birtingarmyndir kvenna í auglýsingum.
- The male gaze er verkefni um birtingarmyndir kvenna í kvikmyndum.
- Stalking for love er verkefni um birtingarmyndir ástar í kvikmyndum.
- Ögraðu kynjakerfinu er verkefni til að hvetja ungmenni til að prófa að ögra stöðluðum hugmyndum um kyn.
- Kynjafræði fyrir byrjendur er efni ætlað framhaldsskólanemum en er tilvalið til að styrkja eigin þekkingu í kynjafræði. Hægt er að aðlaga efnið að unglingastigi.
- Sexhyrnd hugsun um jafnrétti eru kennsluleiðbeiningar til að efla skilning á hugtökum sem tengjast kvenréttindum og jafnrétti.
- Sjálfsbærni - Verkefnabanki inniheldur ýmis verkefni og fræðslu um sjálfbærni á hinum ýmsu sviðum samfélagsins.
- Taktu eitt skref áfram er verkefni um forréttindi, hindranir og fordómar sem fólk í ólíkum stöðum samfélagsins mætir.
- Margt er um að velja eru kennsluleiðbeiningar og verkefni um atvinnulífið, skólakerfið og sjálfsþekkingu.
- Stefnan sett eru kennsluleiðbeiningar um kynjaskiptan vinnumarkað, jafnrétti kynjanna og skólakerfið.
- Kvenhetjur og karlhetjur eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um jafnrétti kynjanna, mismunun og útlendingahatur.
- Leiðin til Jafnréttislands eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um jafnrétti kynjanna, menntun, mismunun og útlendingahatur.
- Vinna og börn eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um félagsleg réttindi, jafnrétti kynjanna, mismunun og útlendingahatur.
Klám
- Að tala við börn um klám eru leiðbeiningar um hvernig er hægt að nálgast umræðu um klám við ungmenni.
- Klám og sexting er fræðslumyndband um stafrænt kynferðisofbeldi og umfang kynferðislegra myndsendinga meðal barna.
- Munurinn á kynlífi og klámi eru kennsluleiðbeiningar um hvað felst í heilbrigðu kynlífi.
Bækur og kennsluefni
Kynfræðsla
- Fávitar er kynfræðslubók um helstu spurningar ungmenna um kynlíf og samskipti.
- Kvár er heimildarmyndasaga um að vera kynsegin.
- Litla bókin um blæðingar fer yfir alls kyns sem tengist tíðahringnum og túrvörum.
Upplýsingaefni
- Samþykkissamlokan er veggspjald um hvað felst í samþykki.
- Tíðahringurinn er upplýsingabæklingur um hvað felst í tíðahringnum og hvað gerist hverju sinni.
- 10 ástæður fyrir að stofna ekki OnlyFans aðgang er þýtt skjal frá fyrrum kynlífsverkakonu.
Jafnrétti og kynjafræði
- Á ferð um samfélagið er kennslubók í þjóðfélagsfræði sem kemur inn á jafnrétti kynja og önnur samfélagstengd viðfangsefni.
- Kynungabók er fræðsluefni til að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu.
Myndbönd og þættir
Á íslensku
- Myndin af mér er fræðslumynd um kynlíf, ábyrgð og ofbeldi á netinu.
- Alls kyns um kynferðismál er fræðslumynd um kyn, kynvitund, kynhneigð og kynlíf.
- Fáðu já er stuttmynd um samþykki í kynlífi.
- Hinseginleikinn er þáttaröð um ungt hinsegin fólk á Íslandi.
- Forfallakennarinn er fræðslumynd um kynþroska, kynlíf og kynheilbrigði.
- Trans börn er fyrsti þáttur af þremur um trans börn á Íslandi.
Á ensku
- Klámáhorf er stutt myndband eftir Keep It Real Online.
- Your Brain On Porn er myndband um áhrif kláms á heilann.
- Dove Onslaught er myndband um útlitsdýrkun og líkamsímynd.
Á norrænu máli
- Kynþroskinn eru norskir þættir um kynþroskann og allt sem honum fylgir. Þættirnir eru stuttir og mikilvægt er að velja þætti sem henta hverju sinni. Þeir geta verið góðar kveikjur að frekari umræðum eða verkefnavinnu.
Vefsíður
-
Kynþroski stúlkna er vefur hjúkrunarfræðinga um kynþroska.
-
Youmo er sænsk fræðslusíða um kynþroska og samskipti ungmenna.
-
Kynheilbrigði er vefur Heilsuveru um ýmislegt sem tengist kynþroska, kynhneigð og kynheilbrigði.
-
Klámspjall er síða Stígamóta með ýmis fræðslu og upplýsingum um hvernig hægt er að nálgast umræður um klám.
-
Pussypedia er síða um allt sem viðkemur píkum.
-
Vefur 112.is er vefur lögreglunnar þar sem má finna ýmist fræðsluefni um ofbeldi.
-
Hvað er endómetríósa? er upplýsingasíða Endó-samtakana um endómetríósu.
-
Hvað er intersex? er heimasíða Intersex Ísland þar sem finna má ýmsan fróðleik.
-
Netvís er miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi (áður þekkt sem SAFT). Þar má finna efni fyrir börn, starfsfólk og aðstandendur barna.
-
Stopp ofbeldi er vefur sem inniheldur ýmist aldursskipt fræðsluefni um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi.
-
Sterkari út í lífið er vefur um sjálfsmynd barna og ungmenna.
-
Sjúk ást er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna og einkenni heilbrigðra sambanda.
-
Keep it real online er síða um netöryggi og online grooming.