Langholtsskóli
Grunnskóli, 1.-10. bekkur
Holtavegur 23
104 Reykjavík
Skólasetning Langholtsskóla
Skólasetning Langholtsskóla haust 2024 verður fimmtudaginn 22. ágúst.
Nemendur mæta:
- 2. og 3. bekkur kl. 8:30
- 4. og 5. bekkur kl. 9:00
- 6. og 7. bekkur kl. 9:30
- 8., 9. og 10. bekkur kl. 10:00
Nemendur mæta á sal og fara svo í stofur með umsjónarkennara að loknu ávarpi skólastjóra.
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir í viðtöl ásamt foreldrum 22. eða 23. ágúst.
Kennsla hefst í 2. – 10. bekk samkvæmt stundaskrá föstudaginn 23. ágúst.
Kennsla hefst í 1. bekk samkvæmt stundaskrá mánudaginn 26. ágúst.
Skóladagatal
Hér finnur þú skóladagatal Langholtsskóla. Í skóladagatali er eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.
Matur í grunnskólum
Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.
Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.
Um Langholtsskóla
Langholtsskóli er heildstæður grunnskóli þar sem starfa um 740 nemendur í 1.-10. bekk og um 100 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru virðing, vellíðan og skapandi skólastarf.
Í Langholtsskóla er nemandinn í brennidepli, nám hans, líðan og þarfir. Við reynum að koma til móts við þarfir allra með einkunnarorð skólans að leiðarljósi og að nemendur fái verkefni við hæfi og hvatningu. Í Langholtsskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og blöndun nemenda þvert á bekki m.a. í list- og verkgreinum og smiðjum sem eru á öllum skólastigum. Við leggjum mikla áherslu á gott samstarf við foreldra en það samstarf er lykillinn að farsælu skólastarfi og velgengni nemenda.
Frístundaheimilið Glaðheimar er fyrir börn í 1. og 2. bekk, frístundaheimilið Dalheimar er fyrir börn í 3. og 4. bekk og félagsmiðstöðin Þróttheimar sjá um félagsstarf á mið- og unglingastigi.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Langholtsskóla er: Sesselja Auður Eyjólfsdóttir og Brynja Dröfn Þórarinsdóttir
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Stjórnendur í Langholtsskóla
- Skólastjóri: Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir
- Aðstoðarskólastjóri: Sesselja Eyjólfsdóttir
- Deildarstjórar stoðþjónustu: Erna Björk Hjaltadóttir
- Deildarstjóri yngsta- og miðstigs: Guðbjörg Pálsdóttir
- Deildarstjóri unglingastigs: Guðlaug Bjarnadóttir
- Námsráðgjafar: Brynja D. Þórarinsdóttir og Greta Jessen
Skólahverfi Langholtsskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Langholtsskóla.
Skólastarfsemi
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Langholtsskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.