Glaðheimar

Frístundaheimili

Holtavegur 11
Langholtsskóli
104 Reykjavík

Félagsmiðstöðin Þróttheimar og frístundaheimilið Glaðheimar séð frá Holtavegi

Um Glaðheima

Glaðheimar er frístundaheimili fyrir börn í 1. og 2. bekk í Langholtsskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Kringlumýri.

Forstöðukona er Sandra Lind Stefánsdóttir 

Aðstoðarforstöðukona er Viktoría Ásgeirsdóttir

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Glaðheimum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Glaðheimar eru lokaðir í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Glaðheima má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Glaðheimum má finna á heimasíðu Langholtsskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​