Starfsfólk

Í skóla- og frístundastarfi borgarinnar starfar framsækið starfsfólk sem rýnir eigin starfsaðferðir, vinnur saman að sameiginlegum markmiðum og tileinkar sér nýja starfs- og kennsluhætti.

Hér má finna hagnýtar upplýsingar um þjónustu, ráðgjöf, fræðslu, hugbúnað, persónuvernd og fleira.

Undir Google leiðbeiningar fyrir starfsfólk finnur þú kennslumyndskeið, leiðbeiningar og gátlista um Google námsforritin.

Starfsþróun varðandi stafræna tækni

Kennsluráðgjafar Mixtúru, tækni- og sköpunarsmiðju SFS, eru til húsa á Menntavísindasviði við Stakkahlíð. Þeir bjóða upp á fræðslu, ráðgjöf og stuðning við notkun stafrænnar tækni í skóla- og frístundastarfi borgarinnar. Hægt er að panta fræðslu, vinnustofur og ráðgjöf á mixtura@reykjavik.is.

Gróskutengiliðir - Gróskuteymi

Í hverjum grunnskóla borgarinnar er einn aðili tengiliður skólans við innleiðingarverkefni Stafrænnar grósku og heldur utan um innleiðingu námstækja 1:1 í skólanum ásamt skólastjórnendum og Gróskuteymi skólans. 

Leiðbeiningar - stuðningur

Google leiðbeiningar fyrir starfsfólk

Google Workspace er stafræna skólaumhverfi SFS. Kerfið hefur verið nýtt í skólastarfi til fjölda ára bæði innanlands og erlendis. Því fylgja fjöldi námsforrita eins og Google Classroom þar sem kennarar búa til stafrænar kennslustofur fyrir nemendur.

Kerfið hefur verið áhættumetið og metið út frá áhrifum á persónuvernd í samstarfi við lögfræðiþjónustu skóla- og frístundasviðs (SFS), Nýsköpunarmiðju menntamála og persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Skólum er einungis heimilt að nota hugbúnaðinn í miðlægri uppsetningu SFS og upplýsingatæknideildar Reykjavíkur (UTR). Hver skóli gerir vinnslusamning við fyrirtækið. Öll gögn eru vistuð innan Evrópu.

Nám í Reykjavíkurborg stutt af neti

Veruleiki okkar breyttist skyndilega með Covid. Skólastarf í borginni byggðist á margvíslegri blöndu af staðnámi, heimanámi og námi í gegnum rafræna miðla. Nám með stuðning af neti snýst ekki um að yfirfæra hefðbundna skólaumhverfið inn í rafrænt umhverfi.

Síðan Nám stutt af neti var búin til með það að leiðarljósi að benda á ýmsar aðgengilegar leiðir og ráð sem styðja við samskipti og upplýsingamiðlun milli skóla og heimila og tryggja börnum um leið öryggi og styðja við rútínu og nám

 

Upptökur frá vefvinnustofunum "Getting the most from your Chromebooks"

Í október og nóvember 2021 hélt fyrirtækið AppsEvents fjórar vefvinnustofur fyrir starfsfólk grunnskóla Reykjavíkurborgar. Hér fyrir neðan eru beinir hlekkir á upptökurnar. Athugið að upptökurnar eru á ensku

- Sjá meira um Getting the most from your Chromebooks

- Sjá meira um Designing and Creativity with Chromebooks

- Sjá meira um Explorative Learning opportunities with Chromebooks

- Sjá meira um Using Google Workspace, Chromebooks and Cloud-based 3rd party tools to take learning anywhere

Stafræn borgaravitund

Stafræn borgaravitund (e. digital citizenship) að vera stafrænn borgari, er að hafa þekkingu, færni og viðhorf sem þarf til að sýna ábyrga og virðingarverða hegðun þegar tækni er notuð. Samhliða innleiðingu námstækja 1:1 í skólum borgarinnar er mikilvægt að stuðla að ábyrgri netnotkun og stafrænni borgaravitund í öllu starfi með stafræna tækni.

Netöryggi og persónuvernd

Áður en hugbúnaður er tekinn í notkun í skóla- og frístundastarfi þarf að fara fram áhættumat á honum.
Svara þarf spurningum eins og: Hvaða gögn er unnið með? Hvar eru gögnin vistuð? Er hægt að eyða þeim? Eru auglýsingar tengdar notkun? 

Stjórnendur starfsstaða bera ábyrgð á því að upplýsa foreldra um hvaða tækni er nýtt og hvernig hún er samþætt skólastarfinu. 

 

Kerfisstjórar

Í flestum grunnskólum borgarinnar eru starfandi kerfisstjórar sem starfsfólk getur snúið sér til með vandamál. UTR starfar náið með og styður við daglegt starf kerfisstjóra. 

Vinnur þú hjá Reykjavíkurborg og vantar aðstoð?

Ef þú nærð ekki í kerfisstjórann á þinni starfsstöð:

Sendu beiðni til utr@reykjavik.is

Síminn hjá UTR er: 411 1900

 

Það er mikilvægt að senda upplýsingar um símanúmer og starfsstöð þegar beiðni er send á UTR í tölvupósti.

Stafræn gróska

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar

Þú getur haft samband með tölvupósti: groskan@reykjavik.is