Hugbúnaður í skólastarfi

Vanda þarf val og notkun á hugbúnaði fyrir skólastarf til að tryggja öryggi nemenda og gagna þeirra.
Áður en stafræn tækni er tekin í notkun í skóla- og frístundastarfi fer fram viðamikið greiningarferli sem felur í sér meðal annars áhættumat, vinnslusamninga, mat á áhrifum á persónuvernd. Skólastjóri ber ábyrgð á notkun upplýsingatækni í sínum skóla og ber að fræða foreldra um samþykkta notkun kennslulausnar.
Hugbúnaður í skólastarfi
Apple kjarnahugbúnaður fyrir iPad
Sjá leiðbeiningar um notkun Apple kjarnaforritanna á starfsstöðum SFS:
- Apple Classroom - fyrir kennara til að stýra vinnu með iPad
- Clips - stutt myndskeið, sérlega aðgengilegt forrit
- GarageBand - hljóðupptökur, tónsmíðar
- iMovie - myndbandagerð
- Keynote - glærugerð, rafbækur, smáforrit
- Notes - fyrir glósur og minnisatriði
- Numbers
- Pages - ritvinnsla, veggspjöld, bæklingar
- Safari netvafrinn - innbyggður í öll Apple tæki
- Shortcuts
- Swift Playground - kennir forritun á aðgengilegan og skemmtilegan hátt
- Voice Memos - hljóðupptökur, einfalt og aðgengilegt
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Bitsboard
BlazePod
BlazePod eru litlir snertiskynjarar með ljósum, þegar slegið er á þá slokknar ljósið. Skynjararnir eru tengdir við BlazePod smáforritið í spjaldtölvu með Bluetooth. Í forritinu er að finna fjölbreyttar æfingar og leiki, en einnig má búa til eigin leiki. Drægni skynjara er um 20 metrar og þeir eru vatnsheldir. Í hverjum kassa til útláns eru 6 skynjarar, en hægt er að tengja allt að 12 skynjara við sömu spjaldtölvu.
Nota má ljósin í fjölbreytta hreyfileiki til að efla þol, snerpu og samvinnu en einnig til að koma leik og hreyfingu inn í t.d. þjálfun orðaforða og í sögugerð.
Dæmi um leiki með BlazePod:
- Planki milli tveggja með fjögur ljós í röð á milli sín. A slær á rauðu ljósin og B slær á þau grænu í tiltekinn tíma. Sá sem slær á fleiri ljós vinnur.
- Dreifum ljósunum um rýmið og þau ,,eru flugur”. Börnin ,,eru froskar” og hoppa um og ,,borða flugurnar”.
- Leiðbeiningar um notkun
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Book Creator iPad
Einfaldur og notendavænn hugbúnaður sem gerir nemendum kleift að búa til stafrænar bækur á auðveldan hátt með texta, myndum, teikningum, myndböndum, hljóði og öðrum fjölbreyttum miðlum. Hægt að deila sem E-bók, PDF eða myndbandi.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Cricut fjölskeri
Cricut fjölskerinn er auðveldur í notkun og getur skorið fjölbreytt úrval efna svo sem pappír, pappa, vínyl, textíl efni, felt o.fl áreynslulaus og af nákvæmni. Með vélinni er einnig hægt að nota sérstaka penna til þess að teikna og skrifa út frá stafrænni skrá.
Til þess að skera út í vélinni þarf hugbúnað sem heitir Cricut Design Space þar sem hægt er að hlaða inn SVG (vektor), JPG skrám. Einfalt er að búa til sínar eigin teikningar og fá út skurðarmynstur með örfáum smellum.
Forritið er mjög notendavænt og er hægt að nota í bæði tölvum og spjaldtölvum, góðir möguleikar fyrir skapandi starf.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Dash og dot
Wonder er safn forrita sem eru sérstaklega hönnuð til að vinna með vélmennunum Dash og Dot frá Wonder Workshop.
Nemendur forrita vélmennin með einföldum og sjónrænum hætti í gegnum tákn og kubbakerfi á skapandi og gagnvirkan hátt.
Með Wonder má skapa flókin hegðunarmynstur fyrir vélmennin, láta þau hreyfast, gefa frá sér hljóð, blikka ljósum og bregðast við umhverfi sínu með skynjurum. Forritið býður einnig upp á þrautir og áskoranir sem kenna forritun á leikrænan hátt og efla lausnamiðaða hugsun. Það er mikið notað í STEAM menntun til að kynna nemendum grunnhugtök í forritun og tækni.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Evolytes
Evolytes námskerfið býður upp á skemmtilega leið til að læra og þjálfa stærðfræði. Námsefnið samanstendur af námsbókum, námsleik og upplýsingakerfi sem vinna öll saman sem ein heild í gegnum gagnadrifin einstaklingsmiðaðan hugbúnað. Hugbúnaðurinn les getu nemenda og aðlagar erfiðleikastig námsefnisins að getu hvers og eins í rauntíma.
Kennarar fá góða yfirsýn yfir námsframvindu í rauntíma inni í upplýsingakerfinu og geta því í strax stutt við hvert og eitt barn í ferlinu. Námsleikurinn snýst um að þjálfa nemendur í stærðfræði og hámarka árangur þeirra á einstaklingsmiðaðan hátt.
Nemendur fá viðfangsefni/dæmi til þess að leysa og byggir erfiðleikastig næsta dæmis á niðurstöðum þess fyrra.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Google skólaumhverfið
- Bæklingur um námsforrit Google skólaumhverfisins; yfirlit, Chromevafrinn, drifið, skólastofurnar, dagatal, skjöl, skyggnur, töflureiknir, teikningar, síður, eyðublöð, minnismiðar, fjarfundir.
- Google leiðbeiningar fyrir starfsfólk
- Handbók Reykjavíkurborgar um notkun á Google Workspace for Education Plus
Vinnsla persónuupplýsinga í Google skólaumhverfinu
Grunnskólar Reykjavíkurborgar hafa ákveðið að vinna með tilteknar persónuupplýsingar nemenda í námsumhverfinu Google Workspace for Education Plus sem hluta af kennsluháttum skólanna.
Graphogame lestrarleikurinn
Lestrarleikurinn Graphogame er smáforrit sem hjálpar börnum og fullorðnum að læra undirstöðuatriði í lestri á íslensku. Leikurinn var upphaflega hannaður af finnskum læsisfræðingum með þarfir lesblindra í huga. Hann hefur verið þýddur og staðfærður á íslensku.
Graphogame hentar vel til að kenna og þjálfa byrjendur í lestrarnámi. Til að ná tökum á hljóðum stafanna og læra að tengja hljóðin saman í orð þurfa börn að heyra hljóðin aftur og aftur. Endurtekningin er mikilvægur hluti af því ferli að verða vel læs og leikurinn veitir þá þjálfun, aðlagar verkefnin að persónulegri getu hvers og eins þannig að hver nemandi fær þá þjálfun sem á þarf að halda. Í ferlinu læra nemendur einnig að draga rétt til stafs og komast ekki áfram nema gera það rétt. Mælt er með 15 mínútna notkun daglega.
Lestrarleikurinn er eitt af mest rannsökuðu námsforritum í Evrópu og komið hefur í ljós að eldri nemendur sem eru hæglæsir eða með lestrarvanda hafa náð miklum árangri með því að fara í gegnum leikinn, þá einkum þegar vandinn snýr að hljóðrænni úrvinnslu eða þá nemendur sem eru að læra hljóð íslenska stafrófsins.
-
Að byrja að nota Graphogame, yfirsýn og leiðbeiningabæklingur
-
Handbók fyrir kennara frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Forritið hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf, og er nú aðgengilegt í iPad-námstækjum fyrir nemendur borgarinnar.
Lego Spike Education
Lærum og leikum með hljóðin
Smáforrit hannað til að hjálpa börnum að læra og þróa skilning á hljóðum í máli. Það býður upp á fjölbreytta þjálfun sem miðar að því að styrkja hljóðkerfisvitund, sem er grundvallaratriði fyrir læsi. Börn geta æft sig í að greina og mynda hljóð í orðum á skemmtilegan og gagnvirkan hátt. Smáforritið nýtir myndir, hljóð og leiki til að gera námið aðlaðandi og auðvelt fyrir börnin.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Orðalykill
Orðalykill er lestrar- og málörvunarforrit sem kennir undirstöðuþætti máls og læsis með orðaforðaþjálfun. Orðaþemun eru 22, m.a. skólinn, eldhúsið og útilegan. Innan hvers orðaþema eru þrjár tegundir þjálfunar.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Osmo
Puppet Pals 2
Skapandi smáforrit fyrir iPad sem gerir nemendum kleift að búa til sín eigin stuttmyndir og sögur með því að stjórna stafrænum brúðum á sviði.
Nemendur velja persónur, bakgrunn og tala inn eigin raddir til að segja söguna. Þá er einnig hægt að nota eigin bakgrunn, t.d. matsalinn í skólanum og eigin persónur.
Forritið er notendavænt og hentar sérlega vel fyrir yngri nemendur og þau sem hafa gaman að því að glæða vinnu sína glensi, hvetur til leikrænnar tjáningar og sköpunar.
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Sphero Edu
Sphero Edu sameinar forritanlega Sphero-kúlur og hugbúnað til að kenna forritun og lausnamiðaða hugsun. Hugbúnaðurinn er hannaður fyrir nemendur á öllum aldri og býður upp á forritun með þremur mismunandi aðferðum: teikna og draga línur, kubbaforritun (e. block coding) og textaforritun með JavaScript.
Sphero Edu er notað í kennslu til að þróa tæknilæsi, efla sköpunargáfu og bjóða upp á skemmtileg og gagnvirk verkefni sem tengjast STEAM-námi (vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði).
Hugbúnaðurinn hefur farið í gegnum áhættumat varðandi persónuvernd hjá Reykjavíkurborg, sjá nánar um persónuvernd og stafrænt skólastarf.
Stop Motion Studio Pro
Fyrirtækið safnar hvorki né vinnur persónuupplýsingar notanda. Ekki er þörf á innskráningu. Öll verkefni/gögn sem unnin eru í kennslulausninni vistast annað hvort á tæki notanda nema þegar unnið er í Chromebook þá vistast verkefni/gögn í Google Drive notanda. Ath. ekki er heimilt að nota kennslulausnina ef nemendur eru innskráðir á iPad með Apple ID. |
Viðamikið greiningarferli
Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt ákveðnu verklagi og er hugbúnaður meðal annars metinn út frá:
- Aldurstakmarki
- Söfnun persónuupplýsinga
- Hvort gögn eru vistuð innan eða utan Evrópu
- Hvort auglýsingar eru tengdar notkun
- Hvort hugbúnaðurinn safnar lýsigögnum og annálagögnum
- Hvort hugbúnaðurinn býr til persónusnið sem nýtt er í markaðstilgangi
- Hvernig gögnum og aðgöngum er eytt við lok náms eða þegar hætt er að nota hugbúnaðinn
- Að hugbúnaðurinn standist kröfur um upplýsingaöryggi t.d. reglulegar uppfærslur

Hvað viltu skoða næst?
- Mixtúra Sköpunar- og tækniver SFS
- Starfsþróun Fræðsla í Mixtúru
- Skapandi tækni Skapandi nám, skapandi skil
- Stafrænt nám Innleiðing námstækja 1.1
- Stafræn borgaravitund Skynsemi, ábyrgð, vinsemd.
- Persónuvernd og stafrænt skólastarf Með lögum skal land byggja.
- Google leiðbeiningar fyrir starfsfólk A, B, C, D, E, F, Google.
- Google leiðbeiningar fyrir nemendur A, B, C, D, E, F, Google...
- Stafrænt skólaumhverfi fyrir nemendur Vinnum saman.
- Námstæki Blýantur, yddari, tölva...
- Kerfisstjórar Hefur þú prófað að endurræsa?