Stafræn borgaravitund

Teikning af foreldrum og tveimur börnum

Að vera stafrænn borgari (e. digital citizen) er að hafa þekkingu, færni og viðhorf sem þarf til að sýna ábyrga og virðingarverða hegðun þegar tækni er notuð. 

Samhliða innleiðingu námstækja 1:1 í skólum borgarinnar er mikilvægt að stuðla að ábyrgri netnotkun og stafrænni borgaravitund í öllu starfi með stafræna tækni.

Námsefni um stafræna borgaravitund

Hér má auk annars efnis finna útskýringu Sæmundar Helgasonar á hugtakinu stafræn borgaravitund ásamt kynningu á íslenskri þýðingu námsefnis Common Sence um stafræna borgaravitund. Efnið er að finna á vef spjaldtölvuverkefnis Kópavogs og velkomið að nota með því að geta heimilda. 

 

Stafrænar áskoranir barna

Öll með tæki – öll á netinu – hvað svo? Því fylgir ábyrgð að afhenda barni aðgang að netinu. Þrátt fyrir sína augljósu kosti fylgja því hættur. Það er í okkar höndum að kenna börnunum að umgangast netið og því mikilvægt að við þekkjum helstu áskoranir.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skólastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur fræðir okkur um efnið.

Upplýsingaveitur - fræðsla

Mixtúra

Sköpunar- og upplýsingatækniver skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur

Mixtúra er staðsett á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð, í stofu K-101 í Kletti.

 

Opnunartími Búnaðarbankans:

Mánudagar frá kl. 13:30-15:00

Föstudagar frá kl. 9-11 og 13:30-15:00

Þú getur haft samband með tölvupósti: mixtura@reykjavik.is
Sími 411 7080