Þróttheimar

Youth center for 10–16 year olds

Holtavegur 11
104 Reykjavík

Félagsmiðstöðin Þróttheimar og frístundaheimilið Glaðheimar séð frá Holtavegi

Um Þróttheima

Þróttheimar er félagsmiðstöð á vegum Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn er börn og unglingar í 5. – 10. bekk Langholtsskóla.

Forstöðumaður er Áslaug Ýr Þórsdóttir

Aðstoðarforstöðumaður er Hildur Fjalarsdóttir

Opnunartímar

5. - 7. bekkur

5. bekkur

Mánudagar: 15:00-17:00

Miðvikudagar: 17:00-19:00

6. bekkur

Mánudagar: 15:00-17:00

Miðvikudagar: 17:00-19:00

7. bekkur

Miðvikudagar: 17:00-19:00

Föstudagar: 17:00-19:00

 

8. - 10. bekkur

Mánudagar:    19:30-21:45
Þriðjudagar:    14:00-16:45
Miðvikudagar: 19:30-21:45
Fimmtudagar: 14:00-16:45
Föstudagar:    19:30-22:00

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Þróttheimum má finna á heimasíðu Langholtsskóla.

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​