Eldflaugin
Frístundaheimili
Hlíðaskóli við Hamrahlíð
105 Reykjavík
Um Eldflaugina
Eldflaugin er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Hlíðaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Tjörninni. 1. og 2. bekkur hefur aðstöðu inni í kjallara skólans, 3. og 4.bekkur í rými aðeins ofar.
Forstöðumaður er Rúna Kristín Stefánsdóttir (í orlofi). Starfandi forstöðumaður er Hildur Hlíf Hilmarsdóttir
Aðstoðarforstöðukonur eru Bryndís Ýr Pétursdóttir og Karen Sif Óskarsdóttir
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Eldflauginni frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Eldflaugin er lokuð í vetrarleyfi skólans.
Hagnýtar upplýsingar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Einelti í skóla- og frístundastarfi
Einelti og ofbeldi getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila. Hér má nálgast upplýsingar um hvað best er að gera ef barn verður fyrir einelti í grunnskóla eða frístundastarfi.
Aðgerðaáætlun
Í Réttindaskóla og -frístund er unnið markvisst að einum af grunnþáttum íslenskrar menntunar, lýðræði og mannréttindum. Áhersla er lögð á barnaréttindafræðslu fyrir jafnt börn og fullorðna, og að börn séu virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Eitt af skrefum innleiðingar Barnasáttmálans felst í að vinna aðgerðaráætlun.
Röskun á skóla- og frístundastarfi
Tilmæli eru um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Eldflauginni má finna á heimasíðu Hlíðaskóla