Dalskóli

Grunnskóli, 1.-10. bekkur

Úlfarsbraut 118–120
113 Reykjavík

Leiktæki á lóð Dalskóla.

Skólasetning og skráning í mat

Skólasetning verður fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 14:00 í íþróttahúsinu og eftir hana fara nemendur með kennurum í stofuna sína.

Samið var í kjarasamningum síðastliðið vor að hádegisverður í grunnskólum yrði gjaldfrjáls fyrir alla nemendur næstu þrjú skólaár. Öll börn þurfa að vera skráð í mat, ef foreldrar vilji að þau borði.

Þau sem voru í mat í fyrra og vilja að börnin verði áfram í mat - þurfa ekki að skrá þau sérstaklega, skráningin flyst milli ára - aðeins ef þau eiga ekki að fá mat, þá skal afskrá.

Þau sem voru EKKI í mat í fyrra og nýir nemendur þurfa að ská sig í gegnum Völu skólamat: https://vala.is

Þetta er gert m.a. með það að markmiði að hafa yfirsýn, sporna við matarsóun, halda utan um upplýsingar er varða ofnæmi og/eða óþol og bæta skipulag.

Skóladagatal

Í skóladagatali Dalskóla eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir nemendur, foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Dalskóla

Dalskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili. Í grunnskólanum er 1.-10. bekkur. 

Grunnhugmynd um um starfið í skólanum er að þar líði öllum vel, að börnin fái að dafna, nema og blómstra. Í skólanum er lögð rækt við sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi starf. Dalskóli er án aðgreiningar og öll börn þangað velkomin óháð andlegu og líkamlegu atgervi, menningu og trú.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliðir Dalskóla eru: Guðný Guðlaugsdóttir og Lárey Valbjörnsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsældbarna.is

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Dalskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Leyfisumsókn

Þarft þú að sækja um leyfi fyrir nemanda í Dalskóla? Hér getur þú sótt umsóknareyðublað til þess.

Skólahverfi Dalskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Dalskóla.

Teikning af tveim húsum.

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Rafræn vöktun

Í Dalskóla má finna eftirlitsmyndavélar utandyra og á göngum skólans. Menningarmiðstöð, ásamt sundlaug og íþróttahúsi Fram er í tengslum við Dalskóla, svo innangengt er á milli og ákveðin hætta á því að þangað rati óboðnir gestir auk atvika sem þyrfti að skoða. Vöktun sem þessi er alltaf í þágu öryggis og eignavörslu. Persónuvernd gaf út nýjar reglur um rafræna vöktun nr. 50/2023. Helstu breytingar sem fylgdu þeim reglum var að vistunartími myndefnis var styttur úr 90 dögum í 30 daga.