Stolt og gleði á Menningarmóti í Vesturbæjarskóla
Tungumál og fjölbreytni nemenda fengu að skína á Menningarmóti sem var haldið í Vesturbæjarskóla á Degi mannréttinda barna. Það var afrakstur tíu daga verkefnavinnu með öllum nemendum skólans. Ferlið hófst í ágúst á námskeiði fyrir kennara í samstarfi við MEMM og Kristínu R. Vilhjálmsdóttur.
Foreldrar fylltu skólann og fengu að sjá afraksturinn
Tungumál og fjölbreytni nemenda fengu að skína á Menningarmóti sem var haldið í Vesturbæjarskóla á Degi mannréttinda barna. Það var afrakstur tíu daga verkefnavinnu með öllum nemendum skólans. Ferlið hófst í ágúst á námskeiði fyrir kennara í samstarfi við MEMM og Kristínu R. Vilhjálmsdóttur.
Á Menningarmótinu föstudaginn 20.11 kynntu allir 320 nemendurnir áhugamál sín, styrkleika, tungumál, lífssögur, menningu og annað sem skiptir þau máli, í gegnum skapandi tjáningarleiðir. Foreldrar og fjölskyldur fylltu skólann og alls staðar mátti sjá stolt og gleði.
Í gegnum ferlið lögðu nemendur sig fram af einbeitingu og fengu tækifæri til að uppgötva nýjar hliðar á sjálfum sér og vinum sínum. Kennarar fengu jafnframt nýja innsýn í reynsluheim nemendanna. Sú innsýn nýtist þeim til að sjá betur styrkleika hvers og eins og fá heildarmynd af börnunum.
Í vinnunni kom í ljós að í Vesturbæjarskóla eru tengingar við yfir 30 tungumál. Út frá þessum fjársjóði unnu nemendur saman að því að skapa tungumálaregnboga með mikilvægum gildum skólans. Regnbogann prýddu orð eins og vellíðan, virðing og vinátta sem foreldrar aðstoðuðu við að þýða.
Menningarmót í Réttindaskóla UNICEF
Sem Réttindaskóli UNICEF leggur Vesturbæjarskóli áherslu á rétt barna til þátttöku og tjáningar. Samkvæmt stjórnendum skólans fellur Menningarmótsvinnan vel að Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þeir lögðu einnig áherslu á að Menningarmótið minnti hvert barn á að það skipti máli og ætti hlutdeild í skólasamfélaginu. Einnig ætti það sterkan samhljóm með árlegu Barnaþingi skólans sem var haldið í Menningarmótsvikunni. Þar ræddu nemendur meðal annars samskipti og virðingu og komu hugmyndum sínum á framfæri.
Markmið Menningarmótsverkefnisins er að efla sjálfsmynd, virðingu og samkennd og styrkja tilfinningu barnanna fyrir því að tilheyra hópi. Foreldrar eru mikilvægur hluti af þeirri vegferð. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, hugmyndasmiður verkefnisins, hefur mótað Menningarmót í meira en tvo áratugi. Hún leiðbeindi starfsfólki Vesturbæjarskóla í gegnum ferlið og kom vinnunni af stað með kynningum fyrir alla nemendur en verkefnið stuðlar að því að raddir, tungumál og reynsla nemenda fái að njóta sín.