Barna- og unglingastarf í Kringlumýri
Kringlumýri heldur utanum starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi. Markmiðið er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Lögð er sérstök áhersla á forvarnarstarf, að stuðlað sé að jákvæðum félagsþroska, að starfsemin standi öllum til boða og að fyrirliggjandi séu upplýsingar um íþrótta- og tómstundartilboð í hverfinu. Unnið er samkvæmt stefnumörkun og gæðaviðmiðum Skóla- og frístundasviðs Reykjavikur.