Krakkakot
Frístundaheimili
Hvassaleitisskóli við Stóragerði 17
108 Reykjavík
Um Krakkakot
Frístundaheimilið Krakkakot stendur fyrir viðamiklu frístundastarfi fyrir börn í 1. – 4. bekk við Hvassaleitisskóla þar sem áhersla er lögð á að efla þætti eins og félagsfærni, sjálfsmynd og virka þátttöku með skipulögðum hætti. Krakkakot er í innleiðingarferli fyrir viðurkenningu UNICEF á réttindafrístundaheimili og vinnur einnig mikið með hugmyndafræði Frístundalæsis. Krakkakot er rekið af frístundamiðstöðinni Kringlumýri.
Forstöðukona er Hafdís Oddgeirsdóttir
Aðstoðarforstöðumaður er Sigrún Þorsteinsdóttir
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Krakkakoti frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Krakkakot er lokað í vetrarleyfi skólans.
Hagnýtar upplýsingar
Frístundadagatal
Í frístundadagatali Krakkakots má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér.
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Einelti í skóla- og frístundastarfi
Einelti og ofbeldi getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Það á ekki að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Allir starfsstaðir barna og unglinga eru með áætlun gegn einelti. Foreldrar sem fá vísbendingar eða upplýsingar um einelti ættu að taka það alvarlega og tilkynna til viðkomandi aðila. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila.
Röskun á skóla- og frístundastarfi
Tilmæli um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Krakkakoti má finna á heimasíðu Hvassaleitisskóla.