Laugarsel

Frístundaheimili

Laugarnesskóli við Kirkjuteig 24
104 Reykjavík

""

Um Laugarsel

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Laugarsel er frístundaheimili fyrir börn í 1. og 2. bekk í Laugarnesskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Kringlumýri.

Forstöðumaður er Ísabella Þráinsdóttir

Aðstoðarforstöðumaður er Jón Steinar Ágústsson

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Laugarseli frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Laugarsel er lokað í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Laugarsel hefur þrisvar sinnum fengið vottun sem Réttindafrístund Unicef og vinnum við mikið með barnasáttmálann og réttindi barna í öllu okkar starfi. Við erum einnig með Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Við leggjum áherslu á útiveru og sköpun í starfinu ásamt því að nýta styrkleika og áhugamál bæði barnanna en ekki síður starfsmanna til að skapa skemmtilega klúbba og fjölbreytta dagskrá í Laugarseli.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Laugarsels má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Laugarseli má finna á heimasíðu Laugarnesskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​