Vogasel

Frístundaheimili

Vogaskóli við Skeiðarvog
104 Reykjavík

""

Um Vogasel

Vogasel er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Vogaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Kringlumýri.

Forstöðumaður er Sædís Sif Harðardóttir

Aðstoðarforstöðumaður er Laufey Elísa Hlynsdóttir 

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Vogaseli frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Vogasel er lokað í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Vogasels má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Vogaseli má finna á heimasíðu Vogaskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​