Skýjaborgir

Frístundaheimili

Vesturbæjarskóli við Sólvallagötu
101 Reykjavík

Skýjaborgir frístundaheimili

Um Skýjaborgir

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Skýjaborgir er frístundaheimili fyrir börn í 1. - 4. bekk í Vesturbæjarskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Tjörninni.

Forstöðukona er Laufey Hrönn Jónsdóttir s. 690-9202

Aðstoðarforstöðukona er Hildur Hlíf Hilmarsdóttir

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Skýjaborgum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Skýjaborgir eru lokaðar í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Skýjaborgum má finna á heimasíðu Vesturbæjarskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​