Seljakot

Leikskóli

Rangársel 15
109 Reykjavík

Seljakot

Um leikskólann

Opnunartími Seljakots er frá 07:30 til 16:30

Seljakot tók til starfa haustið 1996. Í leikskólanum dvelja 84 börn samtímis á fimm deildum. Deildarnar heita Mýri, Mói, Kot, Sel og Ból. Leikskólinn er staðsettur við Rangársel í Seljahverfi, mitt á milli Seljakirkju og Ölduselsskóla. Umhverfið er fallegt og ákaflega fjölbreytt með rennandi vatni, trjám og ýmsum gróðri sem bíður upp á ótal útivistarmöguleika.

Leikskólastjóri er Sigríður Kristín Jónsdóttir

Leikskólinn Seljakot

Viltu vita meira um Seljakot? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið

Hugmyndafræði

Gildi Seljakots eru frumkvæði, sköpun og tjáning

 

Í starfi okkar með börnunum er meðal annars horft til hugmyndafræði Reggio Emilila á Ítalíu en sú hugmyndafræði er þekkt fyrir skapandi starf og gagnrýna hugsun. Lögð er áhersla á að börnin fái tækifæri til að nýta sem flesta hæfileika sína svo þeir geti orðið skapandi, gagnrýnir og sjálfstæðir einstaklingar. Þegar unnið er í anda þessara stefnu er það vinnuferlið sem skiptir mestu máli, þar sem skynjun, forvitni og ímyndunarafla barnsins fær að njóta sín. 

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf í Seljakoti? Í skólanámskrá og foreldrahandbók finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Seljakoti? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í Seljakoti? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Miðstöð Seljakots

Leikskólinn Seljakot tilheyrir Suðurmiðstöð. Suðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Breiðholti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Seljakots er: Guðbjörg Oddsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

Framkvæmdir

Tvö færanleg hús voru sett upp við leikskólann á árinu 2019 þar sem yngstu leikskólabörnin dvelja. Sú viðbót var liður í framkvæmdaáætluninni Brúum bilið, sem miðar að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Leikskólinn hefur því stækkað töluvert á undanförnum 2-3 árum og starfsmannaaðstaðan verið bætt til muna.