Eineltisbyrjandi hegðun í leikskóla
Einelti og eineltisbyrjandi hegðun getur hafist á leikskólaaldri. Þessi hegðun á ekki að viðgangast í skóla- og frístundastarfi því hún getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Allir starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila.
Hvað er einelti og eineltisbyrjandi hegðun
Samskiptafærni þar sem félagsfærni og vinátta koma við sögu eru þeir þættir sem helst er litið til þegar verið er að skoða einelti og eineltisbyrjandi hegðun meðal leikskólabarna.
Félagsfærni er að geta átt árangursrík og jákvæð sambönd og samskipti við aðra. Vinátta er börnum mjög mikilvæg. Að eiga vini hefur hvoru tveggja jákvæð áhrif á þroska og vellíðan og er á sama tíma forvörn gegn ýmsum neikvæðum þáttum, eins og einmannaleika, félagslegri einangrun og einelti.
Foreldrar sem fá vísbendingar eða upplýsingar um einelti eða eineltisbyrjandi hegðun ættu að taka það alvarlega og tilkynna til viðkomandi aðila. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila.
Hvað geri ég ef barnið mitt lendir í árekstrum og útistöðum við önnur börn?
- Alla jafna er tekið á þessum hlutum í leikskólanum. Yfirleitt er ekki um valdaójafnvægi að ræða heldur tvo jafningja sem deila.
- Talaðu við barnið þitt. Hlustaðu vel á það og sýndu því ást og skilning.
- Ræddu við skólastjórnanda, deildarstjóra, eða tengilið farsældar í leikskólanum. Þeir kanna samskiptavandann. Sé um alvarlegan samskiptavanda eða eineltisbyrjandi hegðun að ræða gerir skólinn áætlun um aðgerðir.
Ef ekki tekst að leysa málið innan leikskólans m.a. í gegnum lausnarteymi geta skólastjórnendur og/eða foreldrar leitað stuðnings sérfræðinga skóla- og frístunda þjónustu SFS en þar starfar þverfagleg teymi sérfræðinga.
Alvarlegur samskiptavandi
Mikilvægt er að hafa í huga að samskiptavandi getur verið undanfari eineltis og því er sérlega mikilvægt að kenna börnum að leysa úr ágreiningi og aðstoða þau ef það tekst ekki. Hægt er að koma í veg fyrir mörg eineltismál ef leyst er úr samskiptavanda á fyrstu stigum.
Ef barn á í alvarlegum samskiptavanda við önnur börn líður ekki langur tími áður en því fer að líða illa, verður óttaslegið, öryggislaust, einmana og á varðbergi gagnvart félögum. Sjálfstraustið hverfur, barnið dregur sig í hlé og verður jafnvel veikt án sýnilegra sjúkdóma.
Rannsóknir sýna að börn sem sýna ofbeldishegðun gagnvart félögum sínum eru í áhættuhópi hvað varðar andfélagslega hegðun til lengri tíma. Þess vegna er nauðsynlegt að beina barninu inn á farsælar leiðir í samskiptum. Fyrsta skrefið í þá átt er að taka upp jákvætt og markvisst samstarf við leikskólann.
Hver hefur samband?
Yfirleitt er ekki mælt með því að foreldrar barna sem eiga í samskiptavanda hafi samband við foreldri hins barnsins og reyni að leysa málin á eigin vegum. Lagt er til að stjórnandi/deildarstjóri hafi umsjón með því. Deildarstjóri boðar til fundar með foreldrum, útskýrir aðstæður og leitar eftir samkomulagi um aðgerðir til að uppræta samskiptavandann. Samkomulaginu er svo fylgt eftir í samstarfi við foreldra.
Vinsamlegt samfélag
Verkefnið vinsamlegt samfélag varð til við sameiningu leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs í eitt svið; skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar . Með vinsamlegu samfélagi er átt við samfélag þar sem framkoma allra einkennist af virðingu, samkennd og ábyrgð. Þar er einelti ekki liðið en þegar þörf krefur er tekið skipulega á því í samræmi við eineltisáætlun leikskólans og stefnu borgarinnar.