Selið

Frístundaheimili

Melaskóli við Hagamel 1
107 Reykjavík

Selið frístundaheimili

Um Selið

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið Selið hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1. – 2. Bekk í Melaskóla. Selið er rekið af frístundamiðstöðinni Tjörninni.

Forstöðumaður er Þorlákur Björnsson s. 661-0598

Aðstoðarforstöðumaður er Daníel Diaz Garcia

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Selinu frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Selið eu lokað í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Selið leggur mikla áherslu á að börnum líði vel í umhverfinu okkar. Við erum einstaklega dugleg að vera með fjölbreytt og skemmtilegt klúbbastarf. Pizzaklúbbur er fastur liður hjá okkur á föstudögum en hver elskar ekki góða föstudagspizzu. Í listasmiðjunni okkar eru mörg og fjölbreytt verkefni unnin ásamt tilraunum og fleira skemmtilegu. Slímklúbburinn er einstakleg vinsæll en að auki eru ljósmyndaklúbbur, vinabandagerð, skartgripagerð svo eitthvað sé nefnt. Félagsfærni er okkur ofarlega í huga og reynir starfsfólk sífellt að halda vel utan um hópinn og grípa strax inn í ef þörf er á.
Gildi Selsins er VÁ fagmennska – vellíðan og ánægja!

 

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Selinu má finna á heimasíðu Melaskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​