Múlaborg
Leikskóli
Ármúli 8a
108 Reykjavík

Um leikskólann
Leikskólinn Múlaborg var formlega stofnaður í janúar árið 1975. Frá upphafi hefur Múlaborg verið leikskóli án aðgreiningar sem sérhæfir sig í sameiginlegu uppeldi fatlaðra og ófatlaðra barna. Múlaborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem 80 börn á aldrinum eins til sex ára dvelja samtímis. Deildirnar heita Kisu- Bangsa- Unga- og Hvolpadeild. Árið 2023 bættust við þrjár deildir Krumma-, Lunda- og Ugludeild.
Leikskólastjóri er Kristín Árnadóttir.
Leikskólinn Múlaborg
Viltu vita meira um Múlaborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið
Hugmyndafræði
Gildi Múlaborgar eru virðing, traust og jafnrétti
Múlaborg vinnur með hugmyndafræði John Dewey um reynslu, áhuga og virkni sem og fjölgreindarkenningu Howard Garner. Leikskólinn nýtir einnig fræði Jean Piaget og Lev Vygotsky um uppbyggingu þekkingar. Múlaborg er skóli án aðgreiningar - Skóli fyrir alla þar sem lögð er áhersla á jafnrétti í víðu samhengi sem felst m.a. í því að jafna rétt kvenna og karla en líka í því að einstaklingar með og án fötlunar geti fengið að njóta þess að læra, vinna og vera saman. Í Múlaborg er fagfólki og öðrum áhugasömum veitt ráðgjöf vegna kennslu barna með fötlun.

Leikskólastarf
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Múlaborgar? Í skólanámskrá Múlaborgar finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Starfsáætlun
Starfsáætlun fyrir námsárið 2022-2023 er í vinnslu
Hvað er framundan á Múlaborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Miðstöð Múlaborgar
Leikskólinn Múlaborg tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.
Framkvæmdir
Í nóvember 2022 var tekin í notkun viðbótarhúsnæði við leikskólann sem rúmar mun 60 börn. Eftir stækkunina getur leikskólinn tekið á móti 140 börnum. Stækkunin var einn liður í framkvæmdaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Hvað viltu skoða næst?
- Að byrja í leikskóla Að byrja í leikskóla markar upphaf skólagöngu barns og er því stór stund í lífi þess
- Innritun í leikskóla Hægt er að sækja um leikskóla frá fæðingardegi barns
- Allir leikskólar Hér getur þú skoðað lista yfir alla leikskóla í Reykjavík
- Stefnur Hér finnur þú samþykktar stefnur og stefnumarkandi áætlanir Reykjavíkurborgar
- Menntastefna til 2030 - látum draumana rætast Kynntu þér Menntastefnu Reykjavíkur
- Persónuvernd í skóla- og frístundastarfi Leikskólinn tryggir að eingöngu aðilar, sem til þess hafa heimild, hafi aðgang að upplýsingum leikskólans