Laugasól
Leikskóli
Leirulækur 4-6
105 Reykjavík

Um leikskólann
Leikskólinn Laugasól er sameinaður sjö deilda leikskóli Laugaborgar og Lækjaborgar við Leirulæk 4-6. Í húsi Lækjaborgar eru yngri börnin og í húsi Laugaborgar eru eldri börnin. Alls dvelja 145 börn á leikskólanum samtímis.
Leikskólastjóri er Helga Ingvadóttir
Leikskólinn Laugasól
Viltu vita meira um Laugasól? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið.
Hugmyndafræði
Gildi Laugasólar eru virðing, fjölbreytileiki og sköpun
Megináherslur í menntun og uppeldisstarfi leikskólans er frjáls leikur, skapandi starf og umhverfismennt. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði John Dewey og Caroline Pratt. Dewey lagði áherslu á að umhverfið væri jákvætt, vingjarnlegt og kennarinn vinsamlegur leiðbeinandi. Hann benti jafnframt á að börn læra af reynslu, eigin virkni og áhuga en ekki kennslu. Pratt byggði hugmyndafræði sína á framfarastefnu Dewey og hannaði út frá henni einingakubba sem notast er við í leik á Laugasól.

Leikskólastarf
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Laugasólar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Starfsáætlun
Hvað er framundan á Laugasól? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Skóladagatal
Hvenær eru starfsdagar á Laugasól? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Miðstöð Laugasólar
Leikskólinn Laugasól tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.
Framkvæmdir
Til stendur að breyta og bæta aðstöðu í Laugasól og stækka hann með endurgerð á kjallara skólahúsnæðisins. Við það stækkar skólinn um tvær deildir og verður þá níu deilda skóli sem rúma mun 190 -200 börn. Sú stækkun er liður í framkvæmdaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við breytingar á húsnæði leikskólans verði lokið sumarið 2024.
Hvað viltu skoða næst?
- Allir leikskólar Hér getur þú skoðað lista yfir alla leikskóla í borginni
- Að byrja í leikskóla Upphaf skólagöngu barns er stór stund í lífi þess
- Innritun í leikskóla Hægt er að sækja um leikskóla frá fæðingardegi barns
- Stefnur Hér finnur þú samþykktar stefnur og stefnumarkandi áætlanir Reykjavíkurborgar
- Menntastefna til 2030 - látum draumana rætast Kynntu þér Menntastefnu Reykjavíkur
- Persónuvernd í skóla- og frístundastarfi Leikskólinn tryggir að eingöngu aðilar, sem til þess hafa heimild, hafi aðgang að upplýsingum leikskólans