Laugasól

Leikskóli

Leirulækur 4-6
105 Reykjavík

""

Um leikskólann

Opnunartími Laugasólar er frá 7:30 til 16:30

Leikskólinn Laugasól er sameinaður sjö deilda leikskóli Laugaborgar og Lækjaborgar við Leirulæk 4-6. Í húsi Lækjaborgar eru yngri börnin og í húsi Laugaborgar eru eldri börnin. Alls dvelja 145 börn á leikskólanum samtímis. 

Leikskólastjóri er Helga Ingvadóttir

Leikskólinn Laugasól

Viltu vita meira um  Laugasól? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið.

Hugmyndafræði

Gildi Laugasólar eru virðing, fjölbreytileiki og sköpun

 

Megináherslur í menntun og uppeldisstarfi leikskólans er frjáls leikur, skapandi starf og umhverfismennt. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði John Dewey  og Caroline Pratt. Dewey lagði áherslu á að umhverfið væri jákvætt, vingjarnlegt og kennarinn vinsamlegur leiðbeinandi. Hann benti jafnframt á að börn læra af reynslu, eigin virkni og áhuga en ekki kennslu. Pratt byggði hugmyndafræði sína á framfarastefnu Dewey og hannaði út frá henni einingakubba sem notast er við í leik á Laugasól.

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Laugasólar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Laugasól? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar á Laugasól? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

 

Miðstöð Laugasólar

Leikskólinn Laugasól tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Laugasólar er: Anna Birna Rafnsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

Framkvæmdir

Til stendur að breyta og bæta aðstöðu í Laugasól og stækka hann með endurgerð á kjallara skólahúsnæðisins. Við það stækkar skólinn um tvær deildir og verður þá níu deilda skóli sem rúma mun 190 -200 börn. Sú stækkun er liður í framkvæmdaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við breytingar á húsnæði leikskólans verði lokið sumarið 2024.

Athugið að áætlaðar dagsetningar um verklok geta breyst, þar sem þættir á borð við aðgengi að aðföngum, afleiðingar heimsfaraldurs og ófriðar á alþjóðavettvangi geta haft áhrif á framgang framkvæmda. Ennfremur getur ráðningarstaða haft áhrif á tímasetningar varðandi inntöku barna.