Leikskólinn Laugasól - niðurrif og nýbygging

Laugaborgarhúsnæði leikskólans Laugasólar verður rifið og í stað þess byggt á reitnum fullbúið leikskólahúsnæði.
2024 -
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Áætlaðar voru gagngerar endurbætur á Laugaborgarhúsnæði Laugasólar. Við upphaf framkvæmda komu í ljós verulegir ágallar á burðarvirki hússins og voru því framkvæmdir stöðvaðar.

Nú liggur fyrir ákvörðun um niðurrif hússins og uppbyggingu nýs 10 deilda leikskóla þess í stað. Ráðgert er að ný leikskólabygging muni leysa hvorutveggja Lækjarborgar- og Laugaborgarhúsnæði Laugasólar af hólmi og samhliða fjölga leikskólaplássum í hverfinu umtalsvert.

Hvernig gengur?

September 2026

Niðurrif á húsnæði Laugaborgar hefur verið auglýst til útboðs og tilboð hafa verið opnuð. Áætluð lok framkvæmdatíma er 30. október 2026.

Maí 2026

Unnið er að nýju deiliskipulagi svo sækja megi um heimild til niðurrifs á Laugaborg. Samhliða er unnið að frumhönnun nýs leikskólahúsnæðis á reitnum.

Maí 2025

Spretthópur borgarstjóra um leikskólauppbyggingu skilar frá sér tillögu um að Laugaborgarhúsnæðið verði rifið og þess í stað byggður nýr 10 deilda leikskóli sem rúma muni alls 180 börn. 

Ráðgert er að ný leikskólabygging muni leysa hvorutveggja Lækjarborgar- og Laugaborgarhúsnæði Laugasólar af hólmi og samhliða fjölga leikskólaplássum umtalsvert.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi
Síðast uppfært 08.09.2026