Laugalækjarskóli

Grunnskóli, 7.-10. bekkur

Leirulækur 2
105 Reykjavík

""

Viðburðadagatal Laugalækjarskóla

Hér finnur þú viðburðadagatal Laugalækjarskóla. Í viðburðadagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Skólamatur

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Um Laugalækjarskóla

Laugalækjarskóli er hverfisskóli fyrir 12-16 ára nemendur Laugarneshverfis, 7. til 10. bekk. Flestir nemendur skólans eru fyrrum nemendur Laugarnesskóla sem er fyrir nemendur í 1. til 6. bekk. Laugalækjarskóli er einn af grunnskólum Reykjavíkurborgar, heyrir undir Skóla- og frístundasvið og tekur námskrá skólans mið af skólastefnu borgarinnar og framtíðarsýn. Þar er að finna ríka áherslu á einstaklingsmiðað nám og samvinnu nemenda, skóla án aðgreiningar, góða líðan nemenda, sjálfstæði skóla og gott samstarf við grenndarsamfélag.

Félagsmiðstöðin Laugó er við skólann og býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Laugalækjarskóla er: Eydís Aðalbjörnsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

 

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Laugalækjarskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Teikning af hópi fólks.

Skólahverfi Laugalækjarskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Laugalækjarskóla.

Teikning af tveim húsum.