Heiðarborg
Leikskóli með ungbarnadeild
Selásbraut 56
110 Reykjavík

Um leikskólann
Leikskólinn Heiðarborg var stofnaður í júní árið 1990. Hann er staðsettur nálægt Rauðavatni, Elliðaárdalnum og hesthúsunum í Víðidal og njótum við samvista við þessar náttúruperlur í gönguferðum og útinámi. Á Heiðarborg dvelja um 70 börn samtímis á fjórum deildum. Á deildunum Bala og Laut eru 3-6 ára börn, á Lundi 2-3 ára og á Brekku 12-24 mánaða börn. Starfsfólk er um 20 talsins.
Leikskólastjóri er Jóhanna Benný Hannesdóttir
Leikskólinn Heiðarborg
Viltu vita meira um Heiðarborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið.
Hugmyndafræði
Gildi Heiðarborgar eru vinátta gleði og virðing
Í leikskólastarfinu eru lagðar til grundvallar kenningar Howards Gardners um fjölgreindir ásamt kenningum John Deweys. Leikskólinn er 'skóli á grænni grein' og er því umhverfismennt stór hluti af starfinu. Mikið tónlistarlíf er í leikskólanum og hreyfingu er gert hátt undir höfði. Einnig er lögð áhersla á að skapa börnunum öruggt umhverfi, efla þroska þeirra, rækta tjáningar- og sköpunarmátt og styrkja sjálfsmynd þeirra.

Leikskólastarf
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Heiðarborgar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Starfsáætlun
Hvað er framundan á Heiðarborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Leikskóladagatal
Hvenær eru starfsdagar í Heiðarborg? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Miðstöð Heiðarborgar
Leikskólinn Heiðarborg tilheyrir Austurmiðstöð. Austurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Kjalarnesi og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.
Hvað viltu skoða næst?
- Allir leikskólar Hér er listi ásamt hlekkjum á alla leikskóla í Reykjavík
- Að byrja í leikskóla Upphaf skólagöngu barns er stór stund í lífi þess
- Innritun í leikskóla Hægt er að sækja um leikskóla frá fæðingu barns
- Stefnur Hér finnur þú samþykktar stefnur og stefnumarkandi áætlanir Reykjavíkurborgar
- Persónuvernd í skóla- og frístundastarfi Leikskólinn tryggir að eingöngu aðilar, sem til þess hafa heimild, hafi aðgang að upplýsingum leikskólans
- Menntastefna til 2030 - látum draumana rætast Kynntu þér Menntastefnu Reykjavíkur