Gullborg

Leikskóli

Rekagrandi 14
107 Reykjavík

Um leikskólann

Opnunartími Gullborgar er frá 07:30 til 16:30

Leikskólinn Gullborg tók til starfa í júlí árið 1990. Hann er staðsettur við Rekagranda og býður umhverfi leikskólans upp á fjölbreytta möguleika til að kanna og uppgötva náttúruna. Stutt er í fjöru sem býður upp á óendanlega möguleika sem yfirfært er í daglegt starf og leik. Á leikskólanum eru 5 deildir þar sem 96 börn dvelja samtímis. Deildirnar heita Regnboga-, Græna-, Rauða-, Bláa- og Guladeild. Starfsmenn eru 24.

Leikskólastjóri er Rannveig Anna Ólafsdóttir.

 

Leikskólinn Gullborg

Viltu vita meira um Gullborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Hugmyndafræði

Einkunnarorð Gullborgar er sköpun, gleði og vinátta

 

Uppeldisstefna og hugmyndafræði Gullborgar byggir á kenningum E. A Erikson og A. H Maslow um sjálfsmynd einstaklinga og þróun hennar. Kenning Erikson segir að við mótun sjálfsmyndar sé mikilvægt að grunnþörfum sé fullnægt en hugmyndafræði Maslow um þróun sjálfsmyndar snýst um að umhverfið bjóði börnunum upp á að líkamlegum þörfum sé sinnt og veiti öryggi og umhyggju. Þau læri að virða sjálfan sig og sýni öðrum virðingu. Leikurinn er kjarninn í uppeldisstarfinu í leikskólanum og er hann aðalleiðin til að ná markmiðum námskrár. 

Leikskólastarf

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Gullborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Skólanámskrá Gullborgar er í vinnslu

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Gullborgar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar á Gullborg? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

 

Miðstöð Gullborgar

Leikskólinn Gullborg tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Gullborgar er: Ólöf Elsa Guðmundsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​
 

Framkvæmdir

Tvö færanleg hús voru tekin í notkun við Gullborg síðla árs 2021 og stækkuðu þau skólann um tæplega 30 leikskólapláss. Þar eru elstu leikskólabörnin og aðstaða fyrir starfsfólk. Sú stækkun var liður í verkefnaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að fjölga leikskólaplássum og brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. 

Gullborg færanlegar stofur