Langholtsskóli viðhald og framkvæmdir

Langholtsskóli
Holtavegur 23, 104 Reykjavík.

Verkefnið snýr að mótvægisaðgerðum við skólann áður en farið verður í heildarendurbætur á húsnæðinu.
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Framkvæmdamyndir

Hvað verður gert?

Viðhald, endurnýjun og mótvægisaðgerðir hafa hafa staðið yfir í skólanum síðustu ár og verður þeim haldið áfram til að tryggja að kennsla geti haldið áfram við skólann þar farið verður í heildarendurbætur.

Búið er að endurnýja neðri hæð C - álmu skólans sem og loftræsikerfi hefur verið endurnýjað á efri hæð álmunnar.

Verið er að skoða valkosti varðandi endurbætur á íþróttaaðstöðu Langholtsskóla. Valkostir hafa verið kostnaðarmetnir og áhættugreindir. Niðurstaðan verður kynnt þegar hún liggur fyrir.

Hvernig gengur?

Febrúar 2026

Íþróttahús skólans hefur verið lokað frá vori 2025 vegna innivistarvanda og ekki ráðlagt að stunda þar íþróttir. Íþróttakennsla hefur alfarið verið færð yfir í TBR þar sem Íþróttakennsla 5.-10. bekkjar hefur verið. Eftir að íþróttahúsinu við skólann var lokað hefur komið í ljós að fara þyrfti í verulegar viðhaldsframkvæmdir til að koma því í nýtanlegt ástand.

Verið er að greina hvernig íþróttaaðstaða við skólann geti litið út til framtíðar.

Oktober 2024

Loka og öryggisúttekt bygginarfulltrúa og slökkviliðs er lokið

framkvæmdum er því lokið og skólinn hefur fengið þenna hluta skólans afhendann til kennslustarfs að nýju.

Ágúst 2024

Framkvæmdir eru á lokametrum og fyrirhuguð loka-og öryggisúttekt byggingarfulltrúa og slökkviliðs erum mánaðarmótin sept/okt 2024.

Hver koma að verkinu?

Hverjir koma að verkinu

Verksýn - Eftirlit og byggingastjórn
Helga Gunnarsdóttir og Hornsteinar - Aðaluppdrættir og innanhúshönnun
Síðast uppfært 12.02.2026