Langholtsskóli - viðhaldsframkvæmdir og endurgerð

Verkefnið snýr að mótvægisaðgerðum fyrir bætta innivist við skólann ásamt undirbúningi að heildarendurgerð.
2022 -
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Framkvæmdamyndir

Hvað verður gert?

Viðhald, endurnýjun og mótvægisaðgerðir hafa hafa staðið yfir í skólanum síðustu ár og verður þeim haldið áfram til að tryggja að kennsla geti haldið áfram við skólann þar til farið verður í heildarendurbætur.

Svo skapa megi framkvæmdum við heildarendurgerð skólans svigrúm verður hluti starfsemi skólans fluttur í Skólaþorpið í Laugardal. 

Eftirfarandi verkþættir eru framundan við heildarendurgerð skólans:

•    Eldri hlutar skólans fá nýja múrklæðningu
•    Öll þök verða endurnýjuð
•    Gluggum verður skipt út
•    Gólfefnum verður skipt út
•    Lagður verður metnaður í bætta hljóð- og ljósvist
•    Kennslustofur verða aðlagaðar að nútíma kennsluháttum
•    Neysluvatnslagnir verða endurnýjaðar
•    Rafmagnslagnir verða endurnýjaðar
•    Lagning jarðvatnslagna
•    Komið verður fyrir hágæðaloftræsikerfi í alla hluta skólans
 

Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu á þeim verkþáttum sem framundan eru en auk þessa verður íþróttaaðstaða Langholtsskóla bætt.

Hvernig gengur?

Haust - Vetur 2026

Vinna þarf frekari þarfagreiningu fyrir verkefni íþróttahússins og samvinna með skipulagsdeildinni vegna deiliskipulagsbreytingar er hafin.

Apríl 2026

Lagt fram og samþykkt í Borgarráði að hefja innkaupaferli á hönnun fyrir nýju íþróttahúsi Langholtsskóla. 

Febrúar 2026

Íþróttahús skólans hefur verið lokað frá vori 2025 vegna innivistarvanda og ekki ráðlagt að stunda þar íþróttir. Íþróttakennsla hefur alfarið verið færð yfir í TBR þar sem íþróttakennsla 5.-10. bekkjar hefur verið. Eftir að íþróttahúsinu við skólann var lokað hefur komið í ljós að fara þyrfti í verulegar viðhaldsframkvæmdir til að koma því í nýtanlegt ástand.

Verið er að greina hvernig íþróttaaðstaða við skólann geti litið út til framtíðar.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Verksýn

Eftirlit og byggingastjórn við endurgerð jarðhæðar C - álmu

Efla

Ráðgjöf

Verkvist

Ráðgjöf

Hornsteinar og Helga Gunnarsdóttir

Aðaluppdrættir og innanhúshönnun við endurgerð jarðhæðar C - álmu

Ari Oddsson ehf

Verktaki við endurgerð jarðhæðar C-álmu
Last updated 24.09.2026