Langholtsskóli - viðhaldsframkvæmdir og endurgerð
Hvað verður gert?
Viðhald, endurnýjun og mótvægisaðgerðir hafa hafa staðið yfir í skólanum síðustu ár og verður þeim haldið áfram til að tryggja að kennsla geti haldið áfram við skólann þar til farið verður í heildarendurbætur.
Svo skapa megi framkvæmdum við heildarendurgerð skólans svigrúm verður hluti starfsemi skólans fluttur í Skólaþorpið í Laugardal.
Eftirfarandi verkþættir eru framundan við heildarendurgerð skólans:
• Eldri hlutar skólans fá nýja múrklæðningu
• Öll þök verða endurnýjuð
• Gluggum verður skipt út
• Gólfefnum verður skipt út
• Lagður verður metnaður í bætta hljóð- og ljósvist
• Kennslustofur verða aðlagaðar að nútíma kennsluháttum
• Neysluvatnslagnir verða endurnýjaðar
• Rafmagnslagnir verða endurnýjaðar
• Lagning jarðvatnslagna
• Komið verður fyrir hágæðaloftræsikerfi í alla hluta skólans
Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu á þeim verkþáttum sem framundan eru en auk þessa verður íþróttaaðstaða Langholtsskóla bætt.
Hvernig gengur?
Febrúar 2026
Íþróttahús skólans hefur verið lokað frá vori 2025 vegna innivistarvanda og ekki ráðlagt að stunda þar íþróttir. Íþróttakennsla hefur alfarið verið færð yfir í TBR þar sem íþróttakennsla 5.-10. bekkjar hefur verið. Eftir að íþróttahúsinu við skólann var lokað hefur komið í ljós að fara þyrfti í verulegar viðhaldsframkvæmdir til að koma því í nýtanlegt ástand.
Verið er að greina hvernig íþróttaaðstaða við skólann geti litið út til framtíðar.
Október 2024
Loka- og öryggisúttekt byggingarfulltrúa og slökkviliðs vegna endurgerðar á jarðhæð C-álmu er lokið.
Framkvæmdum á jarðhæð C-álmu er því lokið og skólinn hefur fengið þennan hluta skólans afhendan til skólastarfs að nýju.
Ágúst 2024
Framkvæmdir við jarðhæð C-álmu eru á lokametrum og fyrirhuguð loka-og öryggisúttekt byggingarfulltrúa og slökkviliðs erum mánaðarmótin sept/okt 2024.
Mars 2024
Farið í mótvægisaðgerðir í B-álmu í kjölfar innivistarúttektar.
Framkvæmdir við endurgerð á jarðhæð C-álmu ganga vel. Verið að ganga frá vatns- og raflögnum og gert ráð fyrir að hefja gluggaísetningar fljótlega. Miðað er við að framkvæmdir klárist síðsumars.
Janúar 2024
Framkvæmdir í Þorpi, þar á meðal uppsetning á loftræsikerfum, að ljúka og hægt að taka stofurnar aftur til notkunar fljótlega.
Gerð innivistarúttekt á íþróttahúsi skólans og B-álmu. Ljóst að talsverðra framkvæmda sé þörf á íþróttahúsi en staðbundin vandamál í kringum B-álmu sem helgast mest af jarðvatnsálagi.
September 2023
Ákveðið að koma inn loftræsikerfum í færanlegar kennslustofur á lóð skólans, sk. Þorpi. Loftræsihönnun fer af stað og stefnt á framkvæmdalok í lok árs.
Júlí 2023
Hitalagnir lagðar í gólf C-álmu og flotað yfir. Jarðvegsvinna og landmótun eftir drenlagningu kringum húsið hefst.
Júní 2023
Innivistarskimanir gerðar í fleiri rýmum skólans. Mótvægisaðgerðir vegna þeirra undirbúnar og stefnt á að framkvæma í sumarlokun.
Maí 2023
Svo skapa megi hvorutveggja framkvæmdum og skólastarfi svigrúm er ákveðið að hluti skólastarfs skólans fari fram í Ármúla 28 -30 næsta skólavetur. Húsnæðið í Ármúla hefur reynst vel til bráðabirgða fyrir grunnskóla í framkvæmdum.
Niðurrif hafið að innan í C-álmu og verið að leggja lokahönd á fullnaðarhönnun.
Apríl 2023
Teikningar vegna endurgerðar á jarðhæð C-álmu lagðar inn til byggingarfulltrúa. Rýmin verða strípuð inn að steini og endurgerð frá grunni þar sem tekið verður tillit til nútíma kennsluhátta. Fullbúnu loftræsikerfi verður komið fyrir.
Febrúar 2023
Raki greinist í gólfplötu á jarðhæð C-álmu. Mikið jarðvatnsálag sem þarf að drena og ljóst að stórar framkvæmdir þarf til að þurrka gólfplötu og halda henni varanlega þurri. Ákveðið að taka jarðhæð hússins til heildarendurgerðar.