Draumaland

Frístundaheimili

Austurbæjarskóli við Barónsstíg 32
101 Reykjavík

""

Um Draumaland

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Draumaland er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Austurbæjarskóla sem er rekið af frístundamiðstöðinni Tjörninni. 

Forstöðumaður Draumalands er Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir s. 695-5062

Aðstoðarforstöðumaður er Sigrún Birna Arnardóttir

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Draumalandi frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Draumaland er lokað í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Það sem einkennir Draumaland er mikil fjölmenning, mikil áhersla er lögð á klúbbastarf og að leyfa börnunum að leiða starfið eins mikið og hægt er. Staðsetningin gerir það að verkum að auðvelt er að fara með börnin í styttri og lengri vettvangsferðir að heimsækja miðbæinn, höfnina, Klambratún og Hljómskálagarðinn svo dæmi séu tekin. Á föstudögum er Fjórðabekkjarklúbbur þar sem fjórði bekkurinn fær að njóta sín í verkefnum sem henta þeirra aldri.

Ýmis gögn og tenglar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Draumalandi má finna á heimasíðu Austurbæjarskóla 

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​