Vinafell

Frístundaheimili

Norðurfell 17-19
Fellaskóli
111 Reykjavík

""

Um Vinafell

Nemendur í 1. og 2. bekk í Fellaskóla eru í samþættu skóla- og frístundastarfi til 15:40. Eftir það stendur til boða að skrá börn sín í frístund til 17:00. Verkefnið í kringum samþættingu skólastarfsins hefur verið kallað 1, 2 og Fellaskóli. Þar eru öll börnin í skipulögðu skóla- og frístundastarfi til kl. 15:40 sem veitir börnum og foreldrum þeirra heildstæða þjónustu. Markmið er að auka tíma barnanna í íslensku málumhverfi og félagsfærni þeirra. 

Frístundaheimilið Vinafell bíður upp á þjónustu gegn gjaldi frá 15:40-17:00. Opið er í Vinafelli á starfsdögum, í jóla- og páskaleyfi Fellaskóla. Lokað er í vetrarleyfi og á starfsdögum frístundar. Sumarfrístund er starfrækt í Vinafelli í 7 vikur í sumarleyfi Fellaskóla. Vinafell er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi.

Nemendur í 3. og 4. bekk geta tekið þátt í frístundastarfi í Hraunheimum sem er safnfrístund fyrir Fellaskóla og Hólabrekkuskóla.

Bryndís Snorradóttir deildarstjóri yngra stigs og samþætts skóla- og frístundastarfs er forstöðumaður frístundar og Sara Mist Jóhannsdóttir er aðstoðarforstöðumaður.

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Vinafelli frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Vinafell er lokað í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Fjölbreytt starf frístundar er hannað að þörfum barnanna og út frá áhugasviði þeirra. Vinafell tekur fullan þátt í starfi og innleiðingu Draumaskólans Fellaskóla þar sem áherslan er á mál og læsi og tónlist og sköpun.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Vinafelli má finna á heimasíðu Fellaskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​