Hraunheimar

Frístundaheimili

Hraunberg 12
111 Reykjavík

""

Um Hraunheima

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið Hraunheimar er safnfrístund fyrir börn úr 3. - 4. bekk í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Börnin eru sótt af starfsmönnum Hraunheima í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla kl. 13:40. 

Forstöðumaður er Jónína Kristín Þorvaldsdóttir, s: 660-6797

Aðstoðarforstöðumaður er Jenna Katrín Kristjánsdóttir, s: 665-4822

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Hraunheimum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Hraunheimar eru lokaðir í vetrarleyfi skólans.

Hraunheimar

Viltu vita meira um Hraunheima? Hér getur þú skoðað kynningarmyndband um frístundahemilið. 

Dagleg starfsemi

Í Hraunheimum er mikið lagt upp úr útieldun og erum við með sér útieldstæði á lóðinni okkar.

Dæmi um klúbba í Hraunheimum eru leiklistaklúbbur; þar sem börnin hafa búið til handrit í gegnum spuna ásamt lögum og dansi, Harry potter klúbbur þar sem galdraheimurinn er skoðaður út frá sprotum, galdraleikjum og hefðum í sögunni, Kvikmyndaklúbbur, Breiðholt got talent, 4. bekkjarklúbbur í Miðbergi og bakstursklúbbur.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Hraunheima má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Hraunheimum má finna á heimasíðum Fellaskóla og Hólabrekkuskóla.

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​