Gjaldskrár frístundaheimila og félagsmiðstöðva

Hér fyrir neðan finnur þú gjaldskrá fyrir vetrarstarf og sumarstarf frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva og gjaldskrá fyrir sumarsmiðjur félagsmiðstöðva fyrir 10-12 ára. 

Gjaldskrá vetrarstarfs

Þjónusta Mánaðarverð kr. Síðdegishressing kr.  Samtals kr.
Vistun 5 daga 17.713 5.113 22.826
Vistun 4 daga 14.432 4.096 18.528
Vistun 3 daga 11.147 3.066 14.213
Vistun 2 daga 7.865 2.067 9.932
Vistun 1 dag 4.568 1.046 5.614
Lengd viðvera 2.657    
Gjaldskrá gildir frá 1. júní 2024

Ef þjónusta er nýtt kl. 8:00-13:40 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það sérstaklega. 

Gjaldskrá sumarstarfs 2024

Lýsing Tími Verð kr.
Sumarnámskeið 6-9 ára - 5 dagar Kl. 8:30-16:30 15.098
Sumarnámskeið 6-9 ára - 4 dagar Kl. 8:30-16:30 12.151
Sumarnámskeið 6-9 ára - 3 dagar Kl. 8:30-16:30 9.124
Sumarnámskeið 6-9 ára - 2 dagar Kl. 8:30-16:30 6.079
Sumarnámskeið 6-9 ára - 1 dagur Kl. 8:30-16:30 3.045
Ekki er hægt að velja um fjölda daga heldur getur lengd námskeiða verið breytileg eftir aðstæðum.

Gjaldskrá fyrir sumarsmiðjur félagsmiðstöðva fyrir 10-12 ára

Þjónusta Verð kr.
Sumarsmiðjur verð A 889
Sumarsmiðjur verð B 1.782
Gjaldskrá gildir frá 1. júní 2024

Ef sumarsmiðja stendur yfir í meira en einn dag er verðið margfaldað með fjölda daga.

Innheimt er fyrir smiðjur með einni greiðslu í lok tímabilsins, um miðjan júlí. Ekki er veittur systkinaafsláttur af gjaldi í smiðjur.

Vinsamlega athugið að ef hætta á við þátttöku í smiðju þarf að tilkynna það skriflega til viðkomandi frístundamiðstöðvar að minnsta kosti viku áður en smiðja hefst (t.d. fyrir miðnætti á sunnudegi þegar smiðja hefst á mánudegi viku seinna). Ella verður námskeiðsgjald innheimt að fullu.

Tengd skjöl

Umsókn um undanþágu frá greiðslu dvalargjalds á frístundaheimili/félagsmiðstöð fyrir börn sem eru að hefja skólagöngu á Íslandi

Foreldrar barna sem flutt hafa til landsins á síðustu tólf mánuðum, eru ekki fædd á Íslandi og eru með annað móðurmál en íslensku geta fengið undanþágu frá greiðslu gjalda, skv. reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva Reykjavíkurborgar.

Undanþágan gildir fyrir frístundaheimili og sértækar félagsmiðstöðvar í þrjá mánuði á starfstíma grunnskóla og fyrir þrjár vikur í sumarstarfi frístundamiðstöðva.

Niðurfelling gjalda gildir ekki fyrir börn sem eru með lögheimili erlendis og koma tímabundið til Íslands.