Ungbarnaleikskólinn Hallgerðargötu

Ungbarnaleikskóli

Hallgerðargata 11b
105 Reykjavík

Leiksvæði fyrir börn með rólum og rennibraut á grænu og gulu undirlagi. Fjölbýlishús sem hýsir Ungbarnaleikskólann Hallgerðargötu í baksýn.

Um leikskólann

Nýr ungbarnaleikskóli við Hallgerðargötu er sniðin að þörfum ungra barna á aldrinum 12 mánaða til þriggja ára. Börn eru innrituð á aldrinum 12 til 24 mánaða og þurfa foreldrar að sækja um flutning í upphafi þess árs sem börnin verða 3 ára. Leikskólinn rúmar 60 börn og starfar í tveimur deildum. Ungbarnaleikskólar taka inn börn á aldrinum 12-24 mánaða. Sækja þarf um flutning í aðra leikskóla á því ári sem börnin verða 3 ára. Leikskólinn er önnur tveggja starfsstaða, en hin starfstöðin er ungbarnaleikskóli í Bríetartúni.

Leikskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá leikskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Þar er lögð áhersla á að hvetja barnið til uppgötvunar og leiks og gera það að virkum þátttakanda í lýðræðissamfélagi.

Leikskólastjóri er Anna Ben. Blöndal

Aðstoðarleikskólastjóri er Anna Margrét Hermannsdóttir

Hugmyndafræði

Í ungbarnaleikskóla er sérstök rækt lögð við umönnun, góð samskipti og málþroska og er málörvun rauður þráður í gegnum allt það starf sem fram fer í leikskólanum. Hugmyndafræði skapandi starfs og könnunarleikur eru í fyrirrúmi ásamt tónlist, hreyfingu, söng, líkamlegri örvun og útiveru. Við vinnum með málörvunarefni, þar sem áhersla er á sjónrænt skipulag með samtali.

Leikskólastarfsemi

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar á Ungbarnaleikskólanum Hallgerðargötu? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Ungbarnaleikskólanum Hallgerðargötu? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Miðstöð Ungbarnaleikskólans Hallgerðargötu

Ungbarnaleikskólinn Hallgerðargötu tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður leikskólans er: Anna Ben. Blöndal

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​