Undraland
Frístundaheimili
Grandaskóli við Keilugranda 12
107 Reykjavík
Um Undraland
Frístundaheimilið Undraland hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1. og 2. bekk í Grandaskóla. Gengið er inn í Undraland Rekagrandamegin. Í Undralandi er unnið með þemavikur svo sem fjölbreytileikaviku, heilsuviku og réttindaviku. Undraland er rekið af frístundamiðstöðinni Tjörninni.
Forstöðumaður er James Weston
Aðstoðarforstöðukona er Rósa Maggý Gunnarsdóttir
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Undralandi frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Undraland er lokað í vetrarleyfi skólans.
Hagnýtar upplýsingar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Myndir frá Undralandi
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Undralandi má finna á heimasíðu Grandaskóla