Reynisholt
Leikskóli
Gvendargeisli 13
113 Reykjavík
Um leikskólann
Leikskólinn Reynisholt tók formlega til starfa í nóvember 2005. Hann er staðsettur í fallegum trjálundi í næsta nágrenni við Reynisvatn og er starfsfólk þar 25 talsins. Í Reynisholti eru samtímis 80 börn á fjórum deildum. Deildirnar heita Bjartilundur, Geislalundur, Sunnulundur og Stjörnulundur. Umhverfismennt er stór þáttur í starfi leikskólans og var Grænfánanum flaggað í fimmta sinn haustið 2024.
Leikskólastjóri er Elín Júlíana Sveinsdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri er Inga Rut Ingadóttir
Viltu vita meira?
Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans.
Hugmyndafræði
Barnið sjálft er í brennidepli í leikskólastarfinu í Reynisholti
Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þ.e. að hvert barn sé einstakt og því beri að virða þarfir þess og sérstöðu óháð getu, reynslu og þroska. Megináherslur í starfinu, samhliða daglegu lífi, leik og grunnþáttum menntunar Aðalnámskrár, eru lífsleikninám, umhverfismennt og læsi.
Leikskólinn hefur mótað sína hugmyndafræði meðal annars út frá meistaraverkefninu Snerting, jóga og slökun eftir Sigurlaugu Einarsdóttur og þróunarverkefninu Líf og leikni sem unnið var í Reynisholti árin 2006–2008. Þessi verkefni mótuðu hugmyndafræði og sýn leikskólans.
Leikskólastarf
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf í Reynisholti? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Reynisholti? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Leikskóladagatal
Hvenær eru starfsdagar í Reynisholti? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi.
Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.
Miðstöð Reynisholts
Leikskólinn Reynisholt tilheyrir Austurmiðstöð. Austurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Kjalarnesi og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana.
Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliðir Reynisholts eru: Elín J. Sveinsdóttir og Linda Rós Jóhannsdóttir
Myndir frá Reynisholti
Hvað viltu skoða næst?
- Að byrja í leikskóla Að byrja í leikskóla markar upphaf skólagöngu barns og er því stór stund í lífi þess.
- Innritun í leikskóla Hægt er að sækja um leikskóla frá fæðingardegi barns
- Allir leikskólar Viltu kynna þér lista yfir alla leikskóla í Reykjavík?
- Leikskólar Hér eru upplýsingar um leikskólastarf í Reykjavík
- Persónuvernd í skóla- og frístundastarfi Leikskólinn tryggir að eingöngu aðilar, sem til þess hafa heimild, hafi aðgang að upplýsingum leikskólans
- Stefnur Allar stefnur Reykjavíkurborgar
- Menntastefna Reykjavíkur - látum draumana rætast Kynntu þér Menntastefnu Reykjavíkur
- Farsældarþjónusta Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna