Plútó

Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára

Við Sæmundarskóla
Gvendargeisla 168
113 Reykjavík

Mynd af stóru gráu húsi með gluggahlið sem hýsir Plútó félagsmiðstöð

Um Plútó

Félagsmiðstöðin Plútó er ein af níu félagsmiðstöðvum í Árbæ, Norðlinga– og Grafarholti, Úlfarsárdal og Grafarvogi sem starfrækt er af Brúnni, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10.bekk í Sæmundarskóla.

Í Plútó fer fram fjölbreytt starfsemi. Til dæmis má finna þar flott stúdíó sem er mjög vinsælt, jaðarsportklúbb fyrir hóp í 9.bekk og  að auki höfum við aðgang að rafíþróttaveri sem staðsett er í menningarmiðstöðinni í Úlfarsárdal. Einnig getum við notast við íþróttahús skólans og hefur það verið vinsælt síðustu ár. Á hverju ári reynum við að bjóða upp á nýja klúbba eftir áhuga og eftirspurn auk þess að halda áfram með þá klúbba sem vel hafa gengið.

Forstöðumaður er Hera Jónsdóttir

Opnunartímar

5 - 6 bekkur

Mánudagar: 14:00-16:00 

Þriðjudagar: 14:00-16:00 

 
7. bekkur
Þriðjudagar: 14:00-16:00
Miðvikudagar: 17:15-18:45 
 
8 - 10 bekkur
Í hádeginu mán. - fim. 12:10-13:10
 
Mánudagar: 19:30-21:45
Miðvikudagar: 19:30-21:45
Föstudagar: 19:30-22:30
 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Plútó má finna á heimasíðu Sæmundarskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​