Laun og kostnaðargreiðslur borgarfulltrúa

Um laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg fer samkvæmt ákvæðum samþykktar um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa. Á þessari síðu eru birtar upplýsingar um launagreiðslur til kjörinna fulltrúa samkvæmt ákvæðum samþykktarinnar.

Laun og kostnaðargreiðslur borgarfulltrúa

Borgarfulltrúar Grunnlaun Formennskuálag Forseti og oddvitar Borgarráð  Þrjár nefndir Starfskostnaður
Aðalsteinn Haukur Sverrisson 1.140.774       285.194 82.386
Alexandra Briem 1.140.774 285.194   68.446   82.386
Andrea Helgadóttir 1.140.774     68.446   82.386
Árelía Eydís Guðmundsdóttir 1.140.774     68.446 285.194 82.386
Björn Gíslason 1.140.774       285.194 82.386
Dóra Björt Guðjónsdóttir 1.140.774 285.194   285.194   82.386
Einar Þorsteinsson 1.140.774     285.194   82.386
Friðjón R. Friðjónsson 1.140.774       285.194 82.386
Guðný Maja Riba 1.140.774       285.194 82.386
Helga Þórðardóttir 1.140.774 285.194   285.194   82.386
Hildur Björnsdóttir 1.140.774   285.194 285.194   82.386
Hjálmar Sveinsson 1.140.774         82.386
Kjartan Magnússon 1.140.774     68.446   82.386
Kristinn Jón Ólafsson 1.140.774       285.194 82.386
Líf Magneudóttir 1.140.774   285.194 456.310   82.386
Magnea Gná Jóhannsdóttir 1.140.774       285.194 82.386
Marta Guðjónsdóttir 1.140.774     68.446   82.386
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir 1.140.774     285.194   82.386
Sabine Leskopf 1.140.774 285.194   68.446   82.386
Sanna Magdalena Mörtudóttir 1.140.774 285.194 285.194 285.194   82.386
Skúli Helgason 1.140.774 285.194   285.194   82.386
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir 1.140.774   285.194 285.194   82.386
             
Fyrstu varaborgarfulltrúar Grunnlaun Formennskuálag Forseti og oddvitar Borgarráð  Þrjár nefndir Starfskostnaður
Ásta Þórdís Skjalddal 798.542   285.194     82.386
Einar S. Guðmundsson 798.542       285.194 82.386
Helgi Áss Grétarsson 798.542         82.386
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir 798.542         82.386
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns 798.542   285.194     82.386
Sara Björg Sigurðardóttir 798.542       285.194 82.386
Stefán Pálsson 798.542   285.194 68.446   82.386
Þorvaldur Daníelsson 798.542         82.386
Launaútkoma borgarfulltrúa og fyrstu varaborgarfulltrúa frá og með 1. júlí 2025.

Borgarstjóri þiggur laun frá Reykjavíkurborg samkvæmt ráðningarsamningi að upphæð 2.628.812 krónur á mánuði miðað við 21. febrúar 2025 og tekur það breytingum í samræmi við launavísitölu til samræmis við ákvæði 1. mgr. 3. gr. samþykktar um kjör og starfsaðstöður kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Auk launa fær borgarstjóri greiddan fastan starfskostnað að fjárhæð kr. 155.453 á mánuði miðað við 21. febrúar 2025.

Laun borgarfulltrúa voru lengstum tengd þingfararkaupi en í kjölfar úrskurðar kjararáðs nr. 2016.3.001 ákvað borgarstjórn á fundi sínum þann 15. nóvember 2016 að beina því til forsætisnefndar að ákveða að tímabundið taki laun borgarfulltrúa og launagreiðslur annarra kjörinna fulltrúa sem taka mið af þingfararkaupi ekki breytingu þrátt fyrir úrskurðinn. Í framhaldinu var samþykkt breytt tillaga um skipan launamála kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg á þann hátt að tenging við þingfararkaup var afnumin og þess í stað var tekin upp tenging við launavísitölu til þess að endurspegla betur almenna launaþróun þannig að gætt verði samræmis við rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins.

Eftir breytinguna tekur heildarlaunakostnaður borgarfulltrúa og þóknanir annarra kjörinna fulltrúa breytingum til samræmis við launavísitölu. Grunnlaunin miða við þróun launavísitölu frá marsmánuði 2013 og uppfærast í janúar og júlí ár hvert.

Frá og með 1. júlí 2025:

  • Grunnlaun borgarfulltrúa kr. 1.140.774
  • Grunnlaun 1. varaborgarfulltrúa kr. 798.542
  • Borgarfulltrúi fær greiddan starfskostnað kr. 82.386 til að mæta öllum persónulegum kostnaði vegna starfsins.
  • Borgarfulltrúi á rétt á 25% álagi á laun ef hann gegnir formennsku í fagráði/borgarstjórnarflokki eða ef hann situr í þremur eða fleiri fastanefndum.
  • Borgarfulltrúi sem situr í borgarráði á rétt á 25% álagi á laun, kjörinn varamaður á rétt á 6% álagi og formaður borgarráðs á rétt á 40% álagi.
  • Forseti borgarstjórnar á rétt á 25% álagi á laun.
  • Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa með 6% álagi (varamaður í borgarráði) kr. 1.291.606.
  • Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa með 25% álagi (s.s. vegna setu í þremur ráðum) kr. 1.508.354.
  • Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa með 2*25% álagi (s.s. vegna setu í borgarráði og öðrum þremur ráðum) kr. 1.793.548. 
  • Laun og starfskostnaður 1. varaborgarfulltrúa með 6% álagi (varamaður í borgarráði) kr. 949.374.
  • Laun og starfskostnaður 1. varaborgarfulltrúa með 25% álagi (s.s. vegna setu í þremur ráðum) kr. 1.166.122.

Á þessari síðu eru birtar launagreiðslur til borgarfulltrúa frá Reykjavíkurborg en auk þeirra fá borgarfulltrúar fasta mánaðarlega þóknun fyrir stjórnarmennsku í Félagsbústöðum hf., Strætó bs., Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs., Faxaflóahöfnum sf., Malbikunarstöðinni Höfða hf., SORPU bs., Orkuveitu Reykjavíkur, Brú lífeyrissjóði og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Varamenn í umræddum stjórnum fá greitt fyrir hvern setinn fund. Almannavarnanefnd greiðir aðeins fyrir setna fundi. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fær ekki greitt fyrir stjórnarsetu en varamenn í stjórninni fá greitt fyrir þá fundi sem þeir sitja. Fyrir svæðisskipulagsnefnd og aðrar nefndir Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er einnig greitt fyrir setna fundi. Þær tölur eru því allar breytilegar milli mánaða. 

Upplýsingarnar í töflunni voru síðast uppfærðar 17. júlí 2025 og verða næst uppfærðar í janúar 2026.

Hægt er að smella á nöfn fulltrúanna til að fá frekari upplýsingar um þá.

Allar tölur eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.