Um Líf

Líf er fædd í Kaupmannahöfn 13. ágúst 1974. Hún er í sambúð með Snorra Stefánssyni lögmanni og eiga þau fjögur börn fædd 2000, 2009, 2010 og 2012. Þau búa í vesturbæ Reykjavíkur.

Starfsferill 

2016- Borgarfulltrúi

2014-2016 Varaborgarfulltrúi

2010- Skóla- og frístundaráðsfulltrúi

2006-2011 Vefritstjóri Sambands íslenskra sparisjóða og Sparisjóðsins

2004-2006 Grunnskólakennari í Valhúsaskóla og Suðurhlíðaskóla

2000-2007 Þýðandi á fréttastofu RÚV og þýðingaverkefni á vegum RÚV

Nám

2009- Meistarapróf í íslenskukennslu (ólokið)

2001-2004 Kennaraháskóli Íslands, B.Ed.

1991-1994 Stúdentspróf frá Nørre gymnasium í Brønshøj

Félagsstörf

2011-2015 Í stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

2011-2012 Formaður VGR, svæðisfélag Vinstri grænna í Reykjavík

2007-2010 Í stjórn starfsmannafélags Sparisjóðsins og Icebank

2002-2004 Stúdentaráð Kennaraháskólans

2003-2004 Varaformaður BÍSN og varafulltrúi í LÍN