Þorvaldur Davíð Kristjánsson

Um Þorvald

Þorvaldur Davíð Kristjánsson er 1. varaborgarfulltrúi fyrir Viðreisn í Reykjavík. Hann er varaformaður skóla- og frístundaráðs, varaformaður menningarráðs og fulltrúi í velferðarráði. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur hann jafnframt gegnt formennsku í mannréttindaráði.

Þorvaldur er fæddur í Reykjavík árið 1983. Hann lauk BFA-prófi í leiklist frá The Juilliard School í New York árið 2011 og og hefur frá árinu 2019 stundað Executive MBA-nám við University of Oxford. Hann er jafnframt alumni frá Balliol College, University of Oxford.

Starfsferill

Þorvaldur hefur starfað á sviði stjórnsýslu, lista- og menningarmála, menntunar og alþjóðasamstarfs. Hann starfaði hjá Eystrasaltsráðinu (Council of the Baltic Sea States) í Stokkhólmi, þar sem hann var ráðgjafi og síðar forstöðumaður samvinnu og samskiptasviðs. Þar vann hann að verkefnum á sviði svæðisbundins samstarfs, menningar og menntunar og sat jafnframt fyrir hönd ráðsins í Baltic Sea Cultural Heritage Committee.

Þorvaldur hefur einnig starfað á sviði lista og skapandi greina hér á landi og erlendis sem leikari, framleiðandi og höfundur. Hann hefur gefið út barnabækur, komið að framleiðslu sjónvarpsefnis og hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir störf sín.

Menntun

2019– Executive MBA-nám, University of Oxford
2011 BFA-próf í leiklist, The Juilliard School, New York

Nefndarstörf

  • Varaformaður skóla- og frístundaráðs
  • Varaformaður menningarráðs
  • Fulltrúi í velferðarráði
  • Formaður mannréttindaráðs á yfirstandandi kjörtímabili

Viðtalstími

Viðtalstími er eftir samkomulagi. Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið thorvaldur.david.kristjansson@reykjavik.is.