Hvassaleitisskóli

Grunnskóli, 1.-7. bekkur

Stóragerði 11a
108 Reykjavík

Hvassaleitisskóli

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skóladagatal

Í skóladagatali Hvassaleitisskóla eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir nemendur, foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

 

Foreldrar/forsjáraðilar þurfa nú að skrá mataráskrift í kerfi Matartímans og velja þá vikudaga sem börn þeirra vilja borða. Vikudagar sem nemendur velja skulu alltaf vera þeir sömu t.d. allir þriðjudagar og/eða allir fimmtudagar o.s.frv. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má finna á heimasíðu Matartímans/Abler.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Hvassaleitisskóla

Hvassaleitisskóli er 190 barna skóli með nemendum í 1.-7. bekk. Í skólanum eru um það bil 190 nemendur. Flestir nemendur skólans koma frá leikskólanum Austurborg. Að loknum 7. bekk flytjast flestir nemendur skólans yfir í Réttarholtsskóla þar sem þeir ljúka grunnskólagöngu sinni.

Í Hvassaleitisskóla leggjum við áherslu á að setja nemandann og þarfir hans í fyrsta sæti. Í vetur munum við hefja innleiðingu á leiðsagnarnámi ásamt agastefnunni Jákvæður agi. Á yngsta stigi er kennt eftir aðferðum byrjendalæsis og á miðstigi er þróunarverkefni sem kallast ,,Súpa” sem er þverfagleg kennsla. Í skólanum er starfandi einhverfudeild sem gengur undir nafninu meistaradeild og þar stunda 9 nemendur nám.

Frístundaheimilið Krakkakot er fyrir börn í 1.-4. bekk og félagsmiðstöðin Tónabær býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Hvassaleitisskóla er: Í vinnslu

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

 

Skólahverfi Hvassaleitisskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Hvassaleitisskóla.

Teikning af tveim húsum.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Teikning af hópi fólks.