Reynisholt

Leikskóli

Gvendargeisli 13
113 Reykjavík

""

Um leikskólann

Opnunartími Reynisholts er frá 7:30 til 16:30

Leikskólinn Reynisholt tók formlega til starfa í nóvember 2005. Hann er staðsettur í fallegum trjálundi í næsta nágrenni við Reynisvatn og er starfsfólk þar 25 talsins. Í Reynisholti eru samtímis 80 börn á fjórum deildum. Deildirnar heita Bjartilundur, Geislalundur, Sunnulundur og Stjörnulundur. Umhverfismennt er stór þáttur í starfi leikskólans og var Grænfánanum flaggað í fjórða sinn haustið 2017. 

Leikskólastjóri er Elín Júlíana Sveinsdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri er Inga Rut Ingadóttir

 

Viltu vita meira?

Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. 

Hugmyndafræði

Barnið sjálft er í brennidepli í leikskólastarfinu í Reynisholti

 

Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þ.e. að hvert barn sé einstakt og því beri að virða þarfir þess og sérstöðu óháð getu, reynslu og þroska. Megináherslur í starfinu, samhliða daglegu lífi, leik og grunnþáttum menntunar Aðalnámskrár, eru lífsleikninám, umhverfismennt og læsi. Leikskólinn hefur mótað sína hugmyndafræði meðal annars út frá meistaraverkefninu Snerting, jóga og slökun eftir Sigurlaugu Einarsdóttur og þróunarverkefninu Líf og leikni sem unnið var í Reynisholti árin 2006 – 2008. Þessi verkefni mótuðu hugmyndafræði og sýn leikskólans.

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf í Reynisholti? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Reynisholti? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í Reynisholti? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Leikskólabörn í gulum vestum af leikskólanum Reynisholti í göngutúr í skógi

Miðstöð Reynisholts

Leikskólinn Reynisholt tilheyrir Austurmiðstöð. Austurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Kjalarnesi og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta. 

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliðir Reynisholts eru: Elín J. Sveinsdóttir og Helena Rut Sigurðardóttir