Hverfadagar borgarstjóra 2025 - Hlíðar

Hverfadagar borgarstjóra í Hlíðum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun heimsækja borgarinnar næstu vikur og mánuði.

Á hverfadögum mun borgarstjóri heimsækja skóla og stofnanir borgarinnar, hitta starfsfólk borgarinnar í hverfinu, ræða við íbúa og fulltrúa félagasamtaka, íþróttafélaga og foreldrafélaga auk þess að bjóða upp á opna viðburði þar sem fólk getur rætt málin við hana og fulltrúa yfirstjórnar borgarinnar.

Hverfadagar verða í Hlíðunum dagana 2.–6. mars 2026.

 

""

Sérkenni hverfisins

Hlíðahverfi er gróið íbúðarhverfi þar sem búa um 13.500 íbúar. Í Hlíðahverfi er einn almennur grunnskóli, Hlíðaskóli, fyrir nemendur í fyrsta til tíunda bekk. Auk þess eru í hverfinu skólarnir Klettaskóli, sem er sérskóli á grunnskólastigi, barnaskóli Hjallastefnunnar, Suðurhlíðaskóli og Menntaskólinn við Hamrahlíð. Fjórir leikskólar eru í hverfinu.

Hverfið er vel staðsett með tilliti til almenningssamgangna og göngu- og hjólastígakerfis borgarinnar. Í næsta nágrenni eru vinsæl útivistarsvæði og má þar nefna Öskjuhlíð, Klambratún og Nauthólsvíkin. Stutt er í menningu og listir í Hlíðunum enda eru Kjarvalsstaðir í hjarta hverfisins. Knattspyrnufélagið Valur rekur svo fjölbreytt íþróttastarf á Hlíðarenda.

Dagskrá heimsóknar borgarstjóra

Á meðan á hverfadögunum stendur mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri heimsækja skóla hverfisins og funda með fulltrúum foreldrafélaga skólanna og spjalla við skólastjórnendur og annað starfsfólk. Þá mun hún kynna sér aðra starfsemi borgarinnar í hverfinu og funda með félagasamtökum, forsvarsfólki íþróttafélaga. 

Borgarstjóri býður íbúum upp á kaffi og spjall í Samfélagshúsinu í Bólstaðarhlíð fimmtudaginn 5. mars klukkan 17.00. Öll velkomin.

 

Hlíðahverfi

Hverfadagar borgarstjóra verða haldnir í öllum hverfum borgarinnar.

Hverfadagar í Hlíðahverfi verða dagana 2.–6. mars 2026.