Garðaborg

Leikskóli

Bústaðavegur 81
108 Reykjavík

Um leikskólann

Opnunartími Garðaborgar er frá 7:30 til 16:30

Garðaborg tók til starfa í febrúar 1983. Staðsetning leikskólans er góð með það í huga að stutt er í Fossvogsdalinn sem og fleiri almenningsgarða. Garðaborg er tveggja deilda leikskóli með 48 börn á aldrinum 1-6 ára.  

Leikskólastjóri er Guðrún Gunnarsdóttir

 

Framkvæmdir og flutningar

Garðaborg mun loka vegna framkvæmda í byrjun janúar 2023. Flutningur starfseminnar yfir í Brákarborg (gamla húsið við Brákarsund) er fyrirhugaður í annarri viku í janúar 2023. Áætluð lok framkvæmda og flutningur til baka er síðsumars 2023. 

Leikskólinn Garðaborg

Viltu vita meira um Garðaborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Hugmyndafræði

Leiðarljós Garðaborgar er lýðræði, vinátta og efniviður. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Deweys þar sem allir fá að læra af reynslu sinni sem og kennslufræði Caroline Pratt með einingakubbum.

Leikskólastarf

Starfsáætlun

Starfsáætlun fyrir námsárið 2022-2023 er í vinnslu

Hvað er framundan á Garðaborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Skólanámskrá Garðaborgar er í vinnslu

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Garðaborgar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar á Garðaborg? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Börn að leik á útisvæði leikskólans Garðaborgar

Miðstöð Garðaborgar

Leikskólinn Garðaborg tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

 

Myndir frá Garðaborg