Flógyn

Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára

Klébergsskóli við Kléberg
116 Reykjavík

Klébergsskóli á Kjalarnesi

Um Flógyn

Flógyn er félagsmiðstöð á vegum Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, starfrækt af Klébergsskóla. Markhópurinn er börn og unglingar í 5. – 10. bekk.

Forstöðukona er Brynhildur Hrund Jónsdóttir

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Flógyn má finna á heimasíðu Klébergsskóla.