English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Stafræn borgaravitund (e. digital citizenship) að vera stafrænn borgari, er að hafa þekkingu, færni og viðhorf sem þarf til að sýna ábyrga og virðingarverða hegðun þegar tækni er notuð.
Samhliða innleiðingu námstækja 1:1 í skólum borgarinnar er mikilvægt að stuðla að ábyrgri netnotkun og stafrænni borgaravitund í öllu starfi með stafræna tækni.
Sæmundur Helgason kennari í Langholtsskóla útskýrir í stuttu máli hvað Stafræn borgaravitund er.
Sæmundur kynnir íslenska þýðingu námsefnis Common Sence um stafræna borgaravitund. Efnið er að finna á vef spjaldtölvuverkefnis Kópavogs, en kennsluráðgjafar í upplýsingatækni á Menntasviði Kópavogsbæjar hafa safnað saman námsefni í stafrænni borgaravitund og sett niður áherslur fyrir hvern árgangs fyrir sig. Verkefni tengd fræðslunni eru að stórum hluta þýtt efni frá Common Sence education. Allt það efni sem er að finna á vef þeirra er velkomið að nota með því að geta heimilda.
Öll með tæki – öll á netinu – hvað svo? Því fylgir ábyrgð að afhenda barni aðgang að netinu. Þrátt fyrir sína augljósu kosti fylgja því hættur. Það er í okkar höndum að kenna börnunum að umgangast netið og því mikilvægt að við þekkjum helstu áskoranir.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skólastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur fræðir okkur um efnið.
SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni hefur um árabil haldið úti öflugu forvarnarstarfi.
Sérstök fræðsluvika tileinkuð upplýsinga - miðlalæsi var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í ár. Allir skólar landsins fengu sendan fræðslupakka með 6 fræðslumyndböndum ásamt kennsluefni. Efnið er allt að finna á nýjum vef sem opnaður var í tilefni átaksins.
Skúli B. Geirdal verkefnastjóri Miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd fræðir foreldra og forsjáraðila um börn og samfélagsmiðla. Fræðslustundin byggir á víðtækri könnun sem framkvæmd var meðan nemenda grunn- og framhaldsskóla á Íslandi.
Á hlaðvarpi RÚV Samfélag og samfélagsmiðlar má finna þætti um börn og netmiðla.
Á vef Umboðsmanns barna eru að finna leiðbeiningar til foreldra og forsjáraðila barna.
Á vefsíðu Barnaheilla er hnappur sem kallast Ábendingalína. Þar getur þú látið vita ef þú rekst á slæma hegðun á netinu, ólöglegt, óviðeigandi eða óþægilegt efni um börn eða unglinga.
Þetta gæti til dæmis verið mynd af einhverjum sem er komin í dreifingu.
Á vef 112 er að finna fræðslu um netöryggi. Þar er einnig í boði netspjall við neyðarvörð 112 og sjálfboðaliða Rauða krossins 1717, nafnlaust ef aðeins er um símtal að ræða.