Brosbær
Frístundaheimili
Engjaskóli við Vallengi
112 Reykjavík
Um Brosbæ
Frístundaheimilið Brosbær er starfrækt fyrir börn í 1. – 4. bekk í Engjaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Brúnni. Leitast er eftir því að hafa starfið sem fjölbreyttast og skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi.
Forstöðukona er María Una Óladóttir
Aðstoðarforstöðumaður er Bjarki Freyr Sigurðsson
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Brosbæ frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Brosbær er lokaður í vetrarleyfi skólans.
Ýmis gögn og tenglar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Myndir frá Brosbæ
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Brosbæ má finna á heimasíðu Engjaskóla.