Brákarborg
Leikskóli
Kleppsvegur 150-152
104 Reykjavík
Um leikskólann
Brákarborg er nýr leikskóli við Kleppsveg 150-152 sem opnaði síðsumars 2022. Í Brákarborg starfa um 30 manns og eru 100 börn þar samtímis á sex deildum. Deildirnar nefnast Dalur, Dyngja, Hlíð, Holt, Lundur og Laut.
Leikskólastjóri: Sólrún Óskarsdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri: María Björnsdóttir
Leikskólinn Brákarborg
Viltu vita meira um Brákarborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið.
Lausnahringurinn
Lausnahringurinn varð til í leikskólanum Brákarborg árið 2018 að frumkvæði elstu barnanna sem vildu finna betri leiðir til að leysa úr samskiptavanda og ágreiningi. Verkefnið hefur síðan þróast í öflugt verkfæri sem hjálpar börnum að æfa sjálfstjórn, samkennd, ábyrgð og lausnamiðaða hugsun.
Framkvæmdir
Framkvæmdum er lokið á Kleppsvegi og flutti leikskólinn úr Brákarsundi 1 á Kleppsveginn haustið 2026
Hugmyndafræði
Agi, virðing og umhyggja eru gildi Brákarborgar
Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Deweys þar sem allir fá að læra af reynslu sinni. Einingakubbar Caroline Pratt ásamt jákvæðri agastefnu eru aðalnámstæki Brákarborgar þar sem 'Lausnahringurinn' skapar sjálfstæði í samskiptum með virðingu og hæfni til að setja mörk.
Leikskólastarf
Leikskóladagatal
Hvenær eru starfsdagar í Brákarborg? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.
Starfsáætlun
Starfsáætlun fyrir námsárið 2022-2023 er í vinnslu
Hvað er framundan á Brákarborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Brákarborgar? Í skólanámskrá Brákarborgar finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Læsi í leikskólum
Með læsi er átt við þá hæfni að geta lesið, skilið, túlkað og unnið á gagnrýninn hátt með ritað mál, orð, tölur, myndir og tákn.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi.
Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.
Stoðþjónusta
Hjá Reykjavíkurborg starfar hópur fagaðila sem sinnir skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og velferðarþjónustu auk annarrar sérhæfðrar ráðgjafar og þjónustu sem þarf til að öll börn geti tekið virkan þátt í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar og látið drauma sína rætast.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana.
Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Brákarborgar er: Guðný Bachmann
Hvað viltu skoða næst?
- Að byrja í leikskóla Upphaf skólagöngu barns er stór stund í lífi þess
- Innritun í leikskóla Hægt er að sækja um leikskóla frá fæðingardegi barns
- Leikskólar Hér getur þú lesið um leikskólastarfið í borginni
- Allir leikskólar Viltu skoða lista yfir alla leikskóla í Reykjavík?
- Eineltisbyrjandi hegðun í leikskóla Mikilvægt er að hafa í huga að samskiptavandi getur verið undanfari eineltis
- Persónuvernd í skóla- og frístundastarfi Leikskólinn tryggir að eingöngu aðilar, sem til þess hafa heimild, hafi aðgang að upplýsingum leikskólans
- Menntastefna Reykjavíkur Kynntu þér Menntastefnu Reykjavíkur
- Farsældarþjónusta Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna