Athafnaborgin 2025
Kynningarfundur borgarstjóra um atvinnulífið og uppbyggingu innviða var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 10. október 2025 kl. 9:00–10:30.
Fundinum var streymt og er upptaka aðgengileg hér fyrir neðan ásamt kynningum fyrirlesara.
Staður og stund
Ráðhús Reykjavíkur, föstudaginn 10. október 2025 kl. 9:00–10:30 og í beinni útsendingu.
Hér sem upptaka >>
Athafnalíf og innviðir
Áherslur fundarins í ár eru á vísindi og nýsköpun; verslun og þjónustu í hverfum borgarinnar; sem og á uppbyggingu stærri atvinnusvæða, innviða og atvinnugreina.
Dagskrá
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri
Öflugt og fjölbreytt athafnalíf í Reykjavík
Borgarstjóri fór yfir stóru myndina. Hvernig hugvit og framsýni skipta máli til að gera Reykjavík eftirsóknarverða til framtíðar. Hvernig unnið er að því að skapa gott umhverfi fyrir verslun og þjónustu innan hverfa borgarinnar; og einnig gefin yfirsýn yfir helstu atvinnusvæði borgarinnar og uppbyggingu innviða.
- Skoða kynningarglærur borgarstjóra - hér sem pdf skrá. Ath. vídeó sem spiluð voru í kynningu borgarstjóra eru aðgengileg í upptöku.
Peter Bur Andersen, Co-Creative Director, BRIQ
Hvernig mótum við staðaranda og styrkjum þjónustu og viðskipti í hverfum?
Hvernig má hleypa lífi í atvinnu- og þjónustuhúsnæði og skapa sterkan staðaranda? Hvað þarf að liggja fyrir í stefnumótun og hverjir eiga að taka þátt í mótun borgarlífs? Peter Bur Andersen fjallar um blöndun borgarinnar, mikilvægi skýrrar stefnu og forgangsröðunar, samstarf borgar og þróunaraðila og hvernig slíkt samstarf getur skapað aðlaðandi og lifandi borgarumhverfi.
Róbert Aron Magnússon, framkvæmdastjóri
Kolaportið endurnýjast
Rekstur Kolaportsins var í óvissu um tíma, en eftir að Reykjavíkurborg gekk fram fyrir skjöldu hafa samningar verið endurnýjar. Nýir rekstraraðilar kynna hugmyndir sínar, væntingar, vonir og þrár.
René Boonekamp, frumkvöðull
Haus. Samfélag fyrir skapandi fólk
Það er mikið af vannýttu húsnæði í borginni sem mætti koma í rekstur og búa til líf, sköpun, gleði og samfélög.
Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu
Hörpu-áhrifin
Var góð fjárfesting að byggja og reka Hörpu? Kynning á helstu niðurstöðum skýrslu um hagræn áhrif Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss.
Þórey Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Vísindagarða
Djúptæknisetur
Kamma Thordarson, verkefnisstjóri
(Atvinnu)Skapandi borg
Hvað skiptir máli í atvinnuþróun í dag? Verða nægilega mörg hótel árið 2030? Vantar atvinnulóðir?
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Sjávarklasans
100% húsið á Granda
Fyrirhuguð nýbygging Sjávarklasans á Grandanum, „100% húsið”, mun styðja við frekari bláa nýsköpun á Grandanum, sem er skilgreindur í atvinnustefnu borgarinnar, sem nýsköpunarsvæði. Jafnframt mun 100% húsið verða vitnisburður fyrir þá framúrskarandi nýsköpun og sjálfbærni sem er til staðar í íslenskum sjávarútvegi.
Fundarstjóri: Hulda Hallgrímsdóttir, teymisstjóri á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
Dagskrá fundar tók breytingum vegna tímastjórnar og því náðist ekki að spila erindi sem tekið hafði verið upp fyrir fundinn, en það er hér fyrir neðan:
Lífvísindaþorpið
.
Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, sérfræðingur í vísindum og nýsköpun hjá Fönn Ráðgjöf
Lífvísindaþorpið í Vatnsmýrinni
Sandra Mjöll kynnir helstu niðurstöður nýlegrar kortlagningar á fyrirtækjum í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi. Hún fjallar um vöxt greinarinnar, tækifæri og áskoranir sem fyrirtækin standa frammi fyrir, og hvernig lífvísindi geta skapað verðmæti, störf og aukin lífsgæði fyrir samfélagið.
Fyrri kynningarfundir borgarstjóra um athafnaborgina
Myndir frá fyrri fundum - Athafnaborgarfundur 2024
Viltu nánari upplýsingar
Þú getur skráð þig á póstlista til að fá nánari upplýsingar um uppbyggingu í Reykjavík.
Einnig getur þú sent okkur tölvupóst á athafnaborgin@reykjavik.is
og hér eru svo upplýsingar um okkur sem eru í atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkur, en við erum hluti af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.